Hættur við lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. mars 2026 14:10 Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Vísir/Anton Brink Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi að nýjum sveitarstjórnarlögum. Hann hefur fallið frá fyrri hugmyndum um að setja á lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum landsins.
Frumvarp Eyjólfs var fyrst kynnt í samráðsgátt í haust en hefur breyst töluvert á þeim tím. Nú er um að ræða ný heildarlög í stað sem fela í sér töluverðar breytingar á gildandi sveitarstjórnarlögum samkvæmt fréttatilkynningu frá Stjórnarráðinu. Markmiðið sé að styrkja og styðja við sveitarstjórnarstigið á Íslandi. Ekki er tekið fram í tilkynningunni af hverju fallið var frá hugmyndinni um lágmarksíbúafjölda en tillagan hlaut töluverða gagnrýni. Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps, gagnrýndi tillöguna í kvöldfréttum Sýnar í október 2025. Þá sagði Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð sem rann saman við Tálknafjarðarhrepp fyrir tveimur árum, að þvingaðar sameiningar bjóði upp á fjölda vandamála. Töluverðar breytingar í vændum Í tilkynningunni eru helstu breytingar útlistaðar. Fyrst var fjármálakafli laganna tekinn til heildarendurskoðunar svo hægt sé að styðja við fjárhagslegan grundvöll sveitarfélaganna. Lagðar eru til skýrari reglur um reikningsskil og áætlanagerð. Frumvarpið felur einnig í sér veigamiklar tillögur að breytingum á reglum sem gilda um samvinnu sveitarfélaganna og lagt er til að æðsta vald í byggðasamlagi verði árlegur aðalfundur aðildarsveitarfélaganna. Þá eru nokkrar tillögur um hvernig megi efla traust almennings til stjórnsýslu sveitarfélaganna. Jafnframt eru lagðar til breytingar á almennu eftirlit ráðherra en meðal tillagna er að gera sveitarstjórnum skylt að setja reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum og trúnaðarstörfum kjörinna fulltrúa, framkvæmdastjóra og æðstu stjórnenda. Frumvarpið má lesa í heild hér. Fréttin hefur verið uppfærð.
Sveitarstjórnarmál Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira