Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. mars 2026 10:59 Farþegar bílsins sögðust hafa keypt þjónustu af manninum eftir auglýsingu á kínverskum samfélagsmiðli. Þau hefðu svo hitt hann á hóteli í Reykjavík og haldið af stað í þriggja daga ferð. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm Fertugur breskur karlmaður af kínverskum uppruna fær ekki að koma aftur til Íslands næstu tvö árin eftir að hafa starfað hér á landi sem leiðsögumaður án leyfis. Maðurinn var gripinn við eftirlit lögreglu og reyndust svör hans við spurningum lögreglu loðin í meira lagi.
Lögreglan á Selfossi stöðvaði för mannsins við almennt umferðareftirlit í september síðastliðnum. Hann reyndist þá aka fimm kínverskum ferðamönnum á hópbifreið í skipulagðri ferð um landið án atvinnu- og dvalarleyfis. Maðurinn gaf lögreglu rangar og villandi upplýsingar eftir handtöku. Hann gaf í skyn að farþegarnir væru starfsmenn bresks fyrirtækis en farþegarnir höfðu aðra sögu að segja. Þeir voru frá Kína og sögðust hafa keypt þjónustu mannsins eftir auglýsingu á samfélagsmiðli. Hann væri bæði leiðsögumaður og bílstjóri í þriggja daga keyptri ferð. Á kínverskum samfélagsmiðli, sem farþegar bentu lögreglu á, kom fram auglýsing frá fyrirtæki mannsins um sex daga ferð til Íslands. Í auglýsingunni kom fram að allt væri innifalið í uppsettu verði, ferðaáætlun fyrir hvern dag ásamt lýsingu á þeim stöðum sem heimsóttir yrðu.Vísir/vilhelm Maðurinn játaði í framhaldinu að hafa ekið ferðamönnum án rekstrarleyfis en sagðist ekki meðvitaður um að til þess þyrfti hann leyfi. Þó kom í ljós að hann hafði sótt um tímabundið atvinnuleyfi þremur mánuðum fyrr. Þá sagðist maðurinn aðeins einu sinni áður hafa komið til Íslands. Vegabréf hans sagði aðra sögu en þar voru ellefu stimplar sem sýndu að minnsta kosti ellefu heimsóknir hans til landsins frá árinu 2023 til 2025. Vegabréf hans var gefið út árið 2023. Minntur á fyrri komur til Íslands sagðist hann þá hafa komið sem ferðamaður til að mynda norðurljós. Maðurinn kom ellefu sinnum til Íslands á árunum 2023 til 2025. Hann kannaðist ekki við það til að byrja með en sagðist svo hafa verið í hlutverki ferðamanns að skoða norðurljósin.Vísir/vilhelm Taldi Útlendingastofnun að heimilt væri að brottvísa manninum vegna brota á lögum um útlendinga en einnig vegna þess að hafa af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar. Hann kærði niðurstöðuna til kærunefndar útlendingamála sem kvað upp úrskurð sinn í febrúar. Nefndin minnti á að atvinnustarfsemi án heimilda hefði neikvæð áhrif á íslenskt samfélag, græfi undan íslenskum vinnumarkaði og greiðslu skatta og opinberra gjalda til ríkissjóðs. Nefndin stytti þó þriggja ára endurkomubann Útlendingastofnunar í tveggja ára bann. Þá gerði kærunefndin athugasemd við vinnubrögð lögreglu að ekki kæmi fram í gögnum málsins að manninum hefði verið boðin túlkaþjónusta. Maðurinn sé þó breskur ríkisborgari, hafi búið þar í nítján ár og því ekki óeðlilegt að framburðaskýrsla hafi farið fram á ensku sem maðurinn kvartaði yfir.
Ferðaþjónusta Lögreglumál Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira