Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og viðkvæmu samtölin Rakel Sveinsdóttir skrifar 5. mars 2026 07:01 Hinrik Jósafat Atlason, framkvæmdastjóri Atlas Primer, segir samtalshermi geta æft okkur fyrir erfiðu samtölin. Samtöl geti haft alvarlegar afleiðingar ef það er ekki rétt staðið að þeim og því um að gera að nýta tæknina til undirbúnings. Vísir/Vilhelm „Ég áttaði mig á því mjög fljótt hversu mikil áhrif þetta var að hafa á nemendur. Sem á augabragði gátu nú breytt öllu rituðu námsefni í hljóðefni, lært í göngutúrum eða hvar sem þeim hentaði, spurt spurninga og sniðið kennsluna að því hvernig þau vildu læra en ekki hvernig ég vildi kenna,“ segir Hinrik Jósafat Atlason, stofnandi og framkvæmdastjóri Atlas Primer.
Hinrik segir gervigreindina nýtast vel til að bjóða upp á hljóð- og samtalsvídd líka fyrir hvaða námsefni sem er og í raun geti hún virkað sem einkakennari fyrir alla. „Ekki aðeins til að læra og þjálfa okkur í menntakerfinu heldur ekkert síður í atvinnulífinu.“ Ein af vörum Atlas Primer heitir Roleplay en þess má geta að fyrirtækið hefur nú þegar haslað sér völl í Bandaríkjunum og er því með mun fleiri notendur en okkar litla land telur í íbúafjölda hér. „Það hefur svo sem löngum verið vitað að það er ekki erfitt að fara í hlutverkaleik með gervigreind. Það sem Roleplay gerir er að búa til samfellu af samtali eða aðstæðum, þannig að fólk undirbúi sig og æfi sig undir samtöl eða aðstæður með samtalshermi sem er jafn raunverulegur og að tala við aðra manneskju.“ Hinrik er meðal fyrirlesara á HR Tech ráðstefnu samtaka mannauðsfólks á Íslandi, Mannauðs, sem haldin verður 10. mars. Þetta er í annað sinn sem ráðstefnan er haldin en markmið hennar er að veita innsýn í þær breytingar og áhrif sem fyrirtæki standa nú þegar frammi fyrir. Í Atvinnulífinu í gær og í dag er fjallað um mannauðsmálin og nýja tækni. Erfiðu samtölin Í samtali við Hinrik kemur reyndar í ljós að gervigreindin er ekki eins ný og við flest höldum. Saga gervigreindarinnar spannar nú þegar sjötíu ár. „En lengst af var hún notuð af fræðimönnum og í rannsóknum,“ segir Hinrik sem nam tölvunarfræði um aldamótin og bjó í raun til sína fyrstu gervigreindarvöru árið 2005. Þegar fæst okkar vissum að fyrirbærið gervigreind væri til. „Ég bjó þá til aðstoðarmann fyrir Windows og nýtti þá gervigreindina til að senda fyrir mig tölvupósta eða stofna aðganga að kerfum og fleira,“ segir Hinrik.Það var þó ekki fyrr en miklu seinna sem hann fór að þróa gervigreindina þannig að nú nýtist hún í mun fleiri verkefnum. Fyrst árið 2019 og þá sem stundakennari í HR en frá árinu 2020 sem vöruþróun hjá Atlas Primer.„Samtalshermir nýtast okkur sérstaklega í aðstæðum sem geta verið erfiðar eða viðkvæmar,“ segir Hinrik og nefnir nokkur dæmi. Til dæmis samtöl um veikindi eða aðrar fjarvistir, um breytingar, uppsögn á starfi og fleira. „Það geta verið alls kyns ástæður fyrir því að þessi samtöl eru erfið. Viðmælandinn getur til dæmis verið einstaklingur sem er með þannig yfirgang að samtalið verður erfitt. Með samtalshermi er hægt að undirbúa sig undir þessar aðstæður þannig að samtalið gangi betur upp, þú eflist og ert betri í samtalinu og nærð því fram sem þarf.“ Æfingin skapi alltaf meistarann og í mörgu myndi okkur ekki detta í hug að fólk fengi ekki tækifæri til að æfa sig. „Samtöl geta haft alvarlegar afleiðingar og það er ekki gott, þegar í raun er fólk nánast að læra að synda eftir að það hefur stokkið í djúpu laugina. Það myndi til dæmis ekki hvarfla að okkur að sýna flugmanni videó og láta það nægja sem æfingu fyrir flug eða að slökkviliðsmaður fengi fræðslu á glærum um brennandi hús áður en hann stígur inn í slíkar aðstæður,“ segir Hinrik og bætir við: Samtöl geta haft alvarlegar afleiðingar. Ein setning í samtali um uppsögn getur haft áhrif á einstakling í áratugi. Að geta æft þessi samtöl með samtalshermi gerir okkur kleift að æfa okkur en líka að gera okkur betri í samtalsfærninni.“ Hinrik segir gervigreindina frábært tól í hlutverkaleiki. Í upphafi hafi varan þeirra verið notuð mikið í þjálfun fyrir söluteymi en þjónustuver hafi fljótlega bæst við og nú er verið að vinna með samtalshermi fyrir ráðningar.Vísir/Vilhelm Erfiður viðskiptavinur? Það er ekki lengi gert að fara að skilja hvernig æfingar og undirbúningur með samtalshermi nær yfir nánast allar aðstæður. Allt frá því að undirbúa okkur undir erfið samtöl í vinnunni, heima fyrir, í námi og svo framvegis. Launasamtöl? Uppsagnir? Ræðumennska? Hjónaskilnaður? Allt eru þetta dæmi um samtöl sem samtalshermir Atlas Primer getur hjálpað okkur að undirbúa okkur fyrir. Einfaldlega með því að tala við okkur – á sama hátt og manneskja myndi gera. Og gefa okkur þannig færi á að æfa okkur og vera undirbúin. Þessu tengt nefnir Hinrik nokkuð gott atriði: Gervigreindinni er ekki ætlað að sjálfvirknivæða mannfólkið. Við getum hins vegar nýtt hana til að efla okkur í þeim hæfileikum sem við búum yfir og æft okkur þannig að gervigreindin sé að styðja við okkur.“ Hinrik segir þörfina á samtalshermi og æfingum augljóslega til staðar. Það hafi fyrirtækið áttað sig á í gegnum þróunarvinnu þar sem nokkrar ólíkar vörur eru nú þegar komnar á markaðinn. „Markmiðið með okkar vöru er að samtalshermirinn geri samtalið það raunverulegt að það meira að segja kalli fram líkamleg viðbrögð. Eins og við upplifum við höfnun, áreiti og fleira,“ segir Hinrik og bætir við: „Mjög fljótt leiddumst við inn á brautir þróunar á samtalsaðstæðum fyrir sölufólk. Þannig að samtalshermirinn okkar væri hluti af söluþjálfun þar sem fólk gat meðal annars æft sig í samtölum við erfiða viðskiptavini.“ En það var ekki allt. „Þetta leiddi okkur fljótt að samtölum starfsfólks í þjónustuverum. Þar sem aðstæður geta verið mjög krefjandi og starfsfólk jafnvel að taka samtöl við fólk í mismunandi ásigkomulagi.“ Hinrik segir samtalshermi góða leið fyrir stjórnendur að átta sig enn betur á því hvar styrkleikar og veikleikar liggja hjá hverjum og einum. Sem aftur gefur þá forskot á það að geta unnið enn betur með styrkleikana. Hinrik segir samtalsherminn Roleplay ekki aðeins nýtast stjórnendum. Samtalshermir sé líka gott æfingartæki fyrir fólk sem á kannski ekki auðvelt með að lesa eða vinna með texta en er afburðargott í samskiptum og samtölum og geta þá auðveldara sýnt vinnustöðum hvað í þeim býr.Vísir/Vilhelm Fleiri atvinnutækifæri Í dag er Roleplay nýtt fyrir stjórnendur og starfsfólk á enn breiðari grunni. „Fyrir mannauðsfólk er hægt að búa til samtöl sem undirbúa umsækjendur um störf undir aðstæður sem vitað er að munu koma upp í því starfi sem verið er að sækja um. Fyrir stjórnendur að átta sig á því hvernig viðkomandi umsækjandi er líklegur til að standa sig áður en ráðning fer fram er allt annað og betra en að átta sig á því sex mánuðum síðar.“ Fyrir umsækjendur getur svona samtalshermir líka búið til tækifæri. „Það eru til dæmis margar ástæður fyrir því að fólk á misauðvelt með að lesa sér til gagns eða að nota texta. En þú getur verið yfirburðagóður í samskiptum og samtalsfærni. Með því að fá tækifæri til að spreyta þig með samtalshermi getur stærri hópur en áður sýnt í hvað þeim býr þegar sótt er um starf.“ Hinrik nefnir samtalsherminn þannig sem viðbót við annað. „Ferilskráin sýnir vinnuveitendum hvað þú hefur gert áður. Samtalshermirinn sýnir hvað þú munt geta gert.“Hinrik segir þá þróun þegar eiga sér stað að samtal við tæknina sé sú leið sem líklegust sé til að verða meira og meira ríkjandi. Tækifærin sem þessu fylgi séu óþrjótandi. Hinrik nefnir aftur kennslu sem dæmi. „Kennarar og aðrir fræðsluaðilar hafa lengi viljað leggja mikið á sig til að gera kennslu sem einstaklingsmiðaða. Stóri þröskuldurinn er hins vegar hversu mikil fyrirhöfn það er og þess vegna hefur það einfaldlega ekki verið raunhæft. Tæknin er að breyta þessu. Það sem áður var fyrirhöfn er tæknin nú að gera fyrir okkur án nokkurrar fyrirhafnar.“
Gervigreind Tækni Nýsköpun Mannauðsmál Tengdar fréttir „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ „Við þurfum að efla okkur í aðlögunarhæfni því breytingarnar sem fram undan eru verða svo svakalega örar,“ segir Adriana Karolina Pétursdóttir, formaður Mannauðs og framkvæmdastjóri mannauðssviðs Rio Tinto og bætir við: „Það sem við lærðum í gær getur verið úrelt á morgun.“ 4. mars 2026 07:03 Óþolandi spjallmenni: „Ég bið alltaf um manneskju“ „Þetta getur samt verið mjög viðkvæm umræða því mörg fyrirtæki hafa fjárfest mikið í að þróa og innleiða þetta,“ segir Stefán Hirst Friðriksson, framkvæmdastjóri Elvo. 26. febrúar 2026 07:03 Magnús er að slá í gegn, mest lesinn og getur allt „Í fyrra notaði ég ChatGPT til þess að skipuleggja sumarfríið. Úr varð frábært sumarfrí með fjölskyldunni: Lestarferðalag um alpana, frá Þýskalandi, í gegnum Austurríki, Liechtenstein, Sviss og með endastöð í Baveno við Lago Maggiore á Ítalíu,“ segir í færslu Hjartar Sigurðssonar gervigreindarsérfræðings og ráðgjafa hjá Mynstru, sem er með meistaragráðu í byggingaverkfræði. 25. febrúar 2026 07:02 Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum „Já, og við erum á hraðleið inn í sjálfkeyrandi bílabransann líka,“ segir doktor Finnur Pind, framkvæmdastjóri Treble Technologies. 26. janúar 2026 07:03 Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Vá hvað það væri nú mikill draumur í dós ef við fengjum alltaf óskipta athygli læknisins þegar við hittum hann, sem væri einbeittur í samtalinu við okkur; að hlusta, nema, greina, útskýra, fræða. 14. janúar 2026 07:00 Mest lesið Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Viðskipti innlent Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendur Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og viðkvæmu samtölin Atvinnulíf Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Samstarf Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Neytendur Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti erlent 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Mun leiða Fab Lab Reykjavík Viðskipti innlent Jón Örn genginn í eigendahópinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og viðkvæmu samtölin „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ „Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan“ „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Slangur, menning og jafnvel húmor getur skolast illa á milli kynslóða Óþolandi spjallmenni: „Ég bið alltaf um manneskju“ Magnús er að slá í gegn, mest lesinn og getur allt Snjallvinna er ekki það sama og fjarvinna eða hybrid Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Samfélagsmiðlar á vinnutíma: Hversu oft og hvers vegna Vann hjá Amazon, með áhyggjur af Trump, reynslu af Rússum en kominn heim Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Glæpamenn í fjarvinnu Svartir sauðir: „Stjórnendur þurfa að hafa kjarkinn til að ræða fjarvistir vegna veikinda“ „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Þessir þrír drepa alla góða fundi „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Sjá meira
„Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ „Við þurfum að efla okkur í aðlögunarhæfni því breytingarnar sem fram undan eru verða svo svakalega örar,“ segir Adriana Karolina Pétursdóttir, formaður Mannauðs og framkvæmdastjóri mannauðssviðs Rio Tinto og bætir við: „Það sem við lærðum í gær getur verið úrelt á morgun.“ 4. mars 2026 07:03
Óþolandi spjallmenni: „Ég bið alltaf um manneskju“ „Þetta getur samt verið mjög viðkvæm umræða því mörg fyrirtæki hafa fjárfest mikið í að þróa og innleiða þetta,“ segir Stefán Hirst Friðriksson, framkvæmdastjóri Elvo. 26. febrúar 2026 07:03
Magnús er að slá í gegn, mest lesinn og getur allt „Í fyrra notaði ég ChatGPT til þess að skipuleggja sumarfríið. Úr varð frábært sumarfrí með fjölskyldunni: Lestarferðalag um alpana, frá Þýskalandi, í gegnum Austurríki, Liechtenstein, Sviss og með endastöð í Baveno við Lago Maggiore á Ítalíu,“ segir í færslu Hjartar Sigurðssonar gervigreindarsérfræðings og ráðgjafa hjá Mynstru, sem er með meistaragráðu í byggingaverkfræði. 25. febrúar 2026 07:02
Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum „Já, og við erum á hraðleið inn í sjálfkeyrandi bílabransann líka,“ segir doktor Finnur Pind, framkvæmdastjóri Treble Technologies. 26. janúar 2026 07:03
Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Vá hvað það væri nú mikill draumur í dós ef við fengjum alltaf óskipta athygli læknisins þegar við hittum hann, sem væri einbeittur í samtalinu við okkur; að hlusta, nema, greina, útskýra, fræða. 14. janúar 2026 07:00