Vaktin: Átökin dreifast enn út Samúel Karl Ólason skrifar 3. mars 2026 09:35 Björgunarsveitarmenn bera lík manns úr byggingu í Beirút í Líbanon eftir loftárás Ísraela í gærkvöldi. AP/Hussein Malla Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að dreifa úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. Útlit er fyrir að árásir Írana hafi aukist í gærkvöldi. Fleiri skotflaugum og drónum hefur verið skotið þaðan og á fleiri ríki en áður. Þá hafa Íranir gert umfangsmiklar árásir á Ísrael, í samfloti við Hezbollah í Líbanon. Helstu tíðindi: Rauði hálfmáninn í Íran segir að minnsta kosti 787 hafa fallið þar í landi í árásum síðustu daga. Tugir eru einnig látnir í Líbanon og í öðrum ríkjum Mið-Austurlanda. Ráðamenn í Íran þvertaka fyrir að til greina komi að semja við Bandaríkjamenn og heita því að berjast áfram. Ali Larijani, æðsti embættismaður Íran hvað varðar varnarmál, sagði í gærkvöldi að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, væri veruleikafirrtur og sagði Írani undirbúna fyrir langvarandi stríð. Ríki Mið-Austurlanda hafa gengið verulega á forða sinn á flugskeytum fyrir loftvarnarkerfi til að skjóta niður dróna og eldflaugar frá Íran. Greinendur vara við því að framleiðsla anni ekki eftirspurn. Bandaríkjamenn og Ísraelar leggja sérstakt kapp á að finna skotpalla Írana og eldflaugar og granda þeim. Fylgst er með gangi mála í Vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni.
Útlit er fyrir að árásir Írana hafi aukist í gærkvöldi. Fleiri skotflaugum og drónum hefur verið skotið þaðan og á fleiri ríki en áður. Þá hafa Íranir gert umfangsmiklar árásir á Ísrael, í samfloti við Hezbollah í Líbanon. Helstu tíðindi: Rauði hálfmáninn í Íran segir að minnsta kosti 787 hafa fallið þar í landi í árásum síðustu daga. Tugir eru einnig látnir í Líbanon og í öðrum ríkjum Mið-Austurlanda. Ráðamenn í Íran þvertaka fyrir að til greina komi að semja við Bandaríkjamenn og heita því að berjast áfram. Ali Larijani, æðsti embættismaður Íran hvað varðar varnarmál, sagði í gærkvöldi að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, væri veruleikafirrtur og sagði Írani undirbúna fyrir langvarandi stríð. Ríki Mið-Austurlanda hafa gengið verulega á forða sinn á flugskeytum fyrir loftvarnarkerfi til að skjóta niður dróna og eldflaugar frá Íran. Greinendur vara við því að framleiðsla anni ekki eftirspurn. Bandaríkjamenn og Ísraelar leggja sérstakt kapp á að finna skotpalla Írana og eldflaugar og granda þeim. Fylgst er með gangi mála í Vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni.
Íran Ísrael Bandaríkin Hernaður Líbanon Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Innlent Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ Innlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Innlent Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Innlent Fleiri fréttir Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Sjá meira