Rekinn eftir 8-0 sigur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. mars 2026 11:30 Skjótt skipast veður í lofti. Þremur mánuðum eftir að hafa stýrt Flamengo til sigurs í brasilísku deildinni og Copa Libertadores hefur Filipe Luís verið látinn fara frá félaginu. getty/Wagner Meier Filipe Luís var rekinn sem þjálfari Flamengo, degi eftir að hafa stýrt brasilíska fótboltaliðinu í 8-0 sigri.
Filipe Luís var ráðinn þjálfari Flamengo í september 2024. Undir hans stjórn varð liðið brasilískur meistari og vann Copa Libertadores, Meistaradeild Suður-Ameríku. Þá komst Flamengo í sextán liða úrslit á HM félagsliða síðasta sumar og vann þar meðal annars Chelsea sem varð meistari. Í desember skrifaði Filipe Luís undir nýjan samning við Flamengo en hann hefur nú verið látinn taka pokann sinn tíu vikum seinna. Flamengo hefur ekki byrjað þetta tímabil vel og tapaði í brasilísku Meistarakeppninni og Meistarakeppni Suður-Ameríku. Í gær vann Flamengo 8-0 sigur á D-deildarliði Madureira og tryggði sér þar með sæti í úrslitum í Ríó-deildinni. Það reyndist síðasti leikur Filipes Luís við stjórnvölinn hjá Flamengo. Filipe Luís átti farsælan feril sem leikmaður en hann lék lengst af með Atlético Madrid. Hann varð einu sinni spænskur meistari með liðinu og vann Evrópudeildina í tvígang. Þá varð Filipe Luís Englandsmeistari með Chelsea 2015. Hann lék 44 leiki fyrir brasilíska landsliðið.
Fótbolti Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Sport Ingibjörg valin sú efnilegasta Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Fleiri fréttir Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Sjá meira