Latína er list mæt Arnar Freyr Sigurðsson skrifar 2. mars 2026 09:31 Ég lærði aldrei latínu í menntaskóla, einfaldlega vegna þess að hún var ekki í boði þegar það kom að áfangavali. Ég gekk í Fjölbrautaskólanum við Ármúla, skóli sem ég ber mikla virðingu fyrir, því að án hans væri ég ekki þar sem ég er í dag. Í dag er ég að skrifa BA-ritgerð um Rómarfrið eða Pax Romana á latínu. Þar sem latneska orðið í “Pax” þýðir í grunninn “samningur”, þar sem það giltu ávallt einhliða samningar við borgir og þjóðir sem Rómverjar voru búnir að yfirtaka, en það er önnur saga. Ég stefni á að útskrifast í vor með BA-gráðu í sagnfræði með klassískum fræðum sem aukagrein. Þar eru skyldufögin: „fórn-gríska“ og „latína” sem allir nemendur þurfa að standast til þess að fá þessu gráðu. Allir sem sóttu tímana, þar á meðal kennarinn, og aðstoðarkennarinn voru MR-ingar sem höfðu útskrifast af fórnmálabraut. Ég fann það strax hversu mikla yfirburði samnemendur mínir höfðu gagnvart latínunni samanborið við mig. Þau skyldu nomínatívus, genatívus, datívus, accúsatívus, ablatívus og vócatívus. En öll þessi orð voru mjög framandi fyrir mér. Ég vissi ekki einu sinni að latína hefði fallakerfi. Þessi önn var mér mjög þungbær, og ég get sagt að þetta hafi verð þyngsta önnin sem ég hef þreytt í háskólanum. Ég hugsaði oft með mér „Af hverju fór ég ekki bara í fórnmáladeild í MR þegar ég var 16 ára?“. En eins og ég þarf oft að minna sjálfan mig á, að það þýðir ekkert að hugsa „ef og hefði“. Þessi önn opnaði einnig fyrir mér málvísindaheiminn, heimur sem ég hafði ávallt áður fordæmt sem leiðinlegan og óáhugaverðan. Oft þegar ég átti að vera læra meira um beygingar í latínu, þá fór ég að lesa mér til um lærða menn hér áður fyrr. Brynjólfur Sveinsson sem prýðir 1000 króna seðilinn okkar var afbragðsmaður í grísku og latínu, og kom það fólki oft í opna skjöldu að „barbarar“ sem komu frá eyju í Norður-Atlantshafi höfðu góð tök á latínu. Þekkt er að Brynjólfur gat haldið uppi rökræðum á latínu og grísku í Danmörku. En ekkert jafnaðist á við þegar Arngrímur Jónsson svaraði fólki á meginlandi Evrópu með Crymógæu, sem var gefin út í Hamborg árið 1609. Þá brá menntamönnum á meginlandinu í brún að sjá hversu góð tök Íslendingar höfðu á latínu. Fallnotkun og sagnbeygingar alltaf réttar, en þeir sem hafa lært latínu vita að það er mjög auðvelt að klúðra beygingum. Sérstaklega þegar þú ert að skrifa með fjöður undir kertaljósi, eins og Arngrímur gerði. Það sem við Íslendingar höfum fram yfir margar aðrar þjóðir er að við erum vön fallbeygingum, sem gefur okkur gott forskot í latínulærdómi. Eins og kennarinn minn í háskólanum benti á að „Bretar og Bandaríkjamenn skilja oft ekkert í þessum föllum“, hins vegar er nefnifall, þolfall, þágufall og eignarfall engin nýlunda fyrir okkur. Ég áttaði mig líka á því að það er svo fallegt sem bæði latínan og íslenskan eiga sameiginlegt, er að það er hægt að skipta út orðaröðinni án þess að setningin breyti um merkingu. Sem dæmi: „Arnar fékk sér samloku“, „Samloku Arnar sér fékk“, setningin heldur merkingu sinni vegna þess að samlokan tekur þolfalli. Það er alveg eins í latínunni, „maðurinn fékk sér brauð“ myndi þýðast svona: „Vir panem habuit“, en ég gæti líka sagt „Panem vir habuit“. Vegna þess að latneska orðið fyrir brauð „pane“ tekur þolfalli í setningunni. Rannsóknir á lærðum Íslendingum krefjast oft góðrar latínuþekkingar, og eru dæmi um að fræðimenn innan Háskóla Íslands hafa þurft að leita sér aðstoðar aðra fræðimanna við þýðingar. Þá má nefna nýlegar rannsóknir á skrifum Sveins Pálssonar, lækni á 19.öld. Fræðimennirnir höfðu þá orð á því hversu góð tök Sveinn hafði á latínunni. Latínan gefur okkur dýpri skilning á orðum sem við notum í daglegu máli. Adrian Goldsworthy vill meina í bók sinni „Pax Romana: War, Peace and Conquest“ á blaðsíðu 11 fyrir áhugasama, að þá má þá færa rök fyrir því að ekkert veldi hefur haft jafn mikil síðari tíma áhrif á Rómarveldi hefur gert. Bókstafirnir sem við notum eru latneskir, og við erum með kross í fána okkar. Allir mánuðirnir í dagatalinu okkar bera Rómversk heiti. Mánuðurinn sem núna er að líða heitir eftir latneska orðinu „Februa“ sem þýðir „hreinsun/að hreinsa“, og næsti mánuður, er nefndur eftir stríðsguði Rómverjar, Mars, þar sem það þótti best að heyja stríð á þeim tíma árs. Þar næsti mánuðir, Apríl, kemur frá latneska orðinu „appere“ sem þýðir „að opna“. Persóna þýðir „gríma“ á latínu, „video“ þýðir „ég sé“, „audio“ þýðir „ég heyri“. Við skrifum með penna, sem er latneska orðið yfir „fjöður“. Ég man að síðustu spurningunni sem einn kennari varpaði yfir bekkinn í síðasta tímanum í áfanga um Rómarsögu, en hún var eftirfarandi „Féll Rómarveldi einhvern tímann, voru þetta ekki frekar valdaskipti?“ Ef að núverandi áform um að skera niður latínukennslu í MR verða að veruleika, á það eftir að verða stórt hnignunarskref, og ég get lofað því fólki sem taka ákvarðanir um slíkt, að sagan mun dæma ykkur. Ykkar nafn mun koma fram í rannsóknum á hnignun latínu þekkingar á Íslandi, og mögulega gætuð þið fengið sama dóm og Honoríus og Commodus í Rómarsögunni. Ég vil því að það fólk hugsi sig vandlega um ábyrgð sína gagnvart íslenskum menningararf, því að latínan og íslenskan hafa alltaf haldist í hendur, og það er á þeirra ábyrgð að ekki verði breytingar á því. Alea iacta est. Höfundur er nemandi í sagnfræði með klassískum fræðum sem aukagrein. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar