Skóli blásinn af og foreldrar eitt stórt spurningarmerki Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. febrúar 2026 22:12 Nemendur í skólanum og foreldrar þeirra velta fyrir sér hvað hafi gengið á í skólanum í dag. Vísir/Vilhelm Skólahald í öllum tíu árgöngum Ölduselsskóla í Breiðholti í Reykjavík hefur verið fellt niður á morgun með skömmum fyrirvara með hagsmuni og öryggi barna og starfsfólks að leiðarljósi. Foreldrar barna í skólanum skilja hvorki upp né niður og velta fyrir sér hvað hafi eiginlega komið upp á.
Miklar framkvæmdir hafa verið í gangi í skólanum vegna myglu. Hálfur skólinn er lokaður, verið er að byggja tímabundnar kennslustofur úr gámum og mikið rask hefur verið á lóðinni. Það var svo upp úr klukkan 13 í dag að foreldrum var tilkynnt að skólanum og lóðinni yrði lokað klukkan 13:40 vegna óviðráðanlegra ástæðna. Foreldrar höfðu engin svör við spurningum barna sinna eftir skóla. Börnin höfðu ýmsar sögur að segja sem beindust flestar að verktaka sem komið hefur að framkvæmdum á svæðinu. Tölvupóstur var svo sendur til foreldra og forráðamanna á sjöunda tímanum í kvöld. Hann var ekki frá skólastjórnendum í Ölduselsskóla heldur Steini Jóhannssyni, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Bar brátt að „Skólahald fellur niður á morgun“ sagði í fyrirsögn tölvupóstsins og í framhaldinu kom fram að ástæðan væri „ófyrirséðar breytingar sem snúa að þeim framkvæmdum sem standa yfir í skólanum.“ Steinn Jóhannsson er sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs.Vísir/Ívar Fannar Gera hafi þurft breytingar og skipta um einn framkvæmdaaðila sem hafi borið heldur brátt að. Eftir að framkvæmdaaðilinn vék þurfti að setja aftur upp öryggisgirðingar og þrífa rými innan skólans eða eins og segir orðrétt: „Þarf að tryggja aðstæður, setja aftur upp öryggisgirðingar og þrífa rými innan skólans.“ Með öryggi barnanna að leiðarljósi Steinn segist biðjast innilegrar velvirðingar vegna óþæginda sem þetta kunni að valda og hve stuttur fyrirvarinn sé. Ölduselsskóli er fyrir börn í 1. upp í 10. bekk í Breiðholti.Reykjavíkurborg „Við viljum minna á að þessi ákvörðun er tekin með hagsmuni og öryggi barna og starfsfólks að leiðarljósi.“ Fréttastofa hefur heyrt í foreldrum barna í Ölduselsskóla sem segja miklar umræður hafa skapast meðal foreldra sem séu undrandi á stöðunni og skilji ekki hvað eiginlega gangi á. Sumir hafa áhyggjur af öryggi barna sinna og margir þurfa að gera ráðstafanir varðandi börn sín sem ekki geta mætt í skólann á morgun. Veistu meira um málið eða hefurðu fréttnæma ábendingu? Sendu okkur fréttaskot hér.
Grunnskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Fleiri fréttir Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Setja lög á verkfall flugvirkja Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Sjá meira