Almar og félagar með augu allra á sér annað kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2026 18:48 Almar Orri Atlason er að standa sig vel með Miami-háskólaliðinu sem er eina ósigraða liðið í Bandaríkjunum í vetur. Getty/Dylan Buell/ Ævintýri íslenska landsliðsmannsins Almars Orra Atlasonar og félaga hans í körfuboltaliði Miami University er nú orðið að risastórri frétt í bandarískum íþróttum.
Ástæðan er að Miami-skólinn er búinn að vinna alla 28 leiki sína á tímabilinu og er eina ósigraða liðið sem er eftir í 1. deild bandaríska háskólakörfuboltans. Liðið hefur reyndar verið það eina ósigraða í nokkrar vikur og heldur áfram að vinna leiki sína öllum að óvörum. Miami-háskólaliðið er nú komið upp í 21. sæti á styrkleikalistanum og hefur ekki verið hærra síðan að liðið komst fyrst á listann um áramótin, en það var í fyrsta sinn á þessari öld þar sem karlakörfuboltalið Miami University er meðal 25 bestu háskólaliða Bandaríkjanna. Í 28. sigrinum í röð vann Miami tíu stiga sigur á Eastern Michigan, 74-64. Þeir eru aðeins sjöunda liðið síðan NCAA-mótið var stækkað í 64 lið árið 1985 til að ná að byrja tímabilið 28-0. View this post on Instagram A post shared by CBS Sports College Basketball 🏀 (@cbssportscbb) Liðið lengdi sigurgöngu sína á útivelli í þrettán leiki í heildina og í tólf leiki á einu tímabili en hvort tveggja er það besta í sögu liðsins. Miami bætti einnig met liðsins fyrir flesta sigra á einu tímabili í 28 en fyrra metið var 25 sigrar á síðasta tímabili. Almar Orri kom að venju sterkur inn af bekkjum en hann var með 12 stig á 20 mínútum og tók auk þess fimm fráköst. Almar er með algjört skotleyfi en hann reyndi tólf skot á þessum tuttugu mínútum. Eins og má sjá hér fyrir neðan þá átti Almar flottustu tilþrif síðasta leiks þegar hann tróð boltanum í körfuna með tilþrifum. Nú verða öll augu á Almari og félögum annað kvöld þegar liðið spilar sinn 29. leik á tímabilinu en sá leikur er á útivelli á móti Western Michigan. View this post on Instagram A post shared by Miami Men’s Basketball (@miamioh_bball)
Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Fótbolti Handtekinn fyrir að skrifa falsfrétt Fótbolti Berglind fékk Gullboltann Körfubolti Nú á að okra á miðum á Ólympíuleikana Sport Fleiri fréttir Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna Sjá meira