Ráðast Bandaríkin á Íran?: Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. febrúar 2026 08:28 Trump virðist treysta fáum jafnvel og Witkoff og Kusnher, sem eru fulltrúar Bandaríkjanna við að því er virðist öll samningaborð. Gildir þá einu hvort um er að ræða Íran, Gasa eða Úkraínu. Getty/Tom Nicholson Ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta um að ráðast eða ráðast ekki á Íran mun meðal annars velta á mati Steve Witkoff og Jared Kushner á því hvort Íranir séu viljandi að tefja fyrir samningi um kjarnorkuáætlun landsins.
Þetta hefur Guardian eftir heimildarmönnum. Forsetinn hefur ekki tekið neina ákvörðun um framhaldið enn sem komið er en beðið er eftir tillögum Írana, sem eiga að berast fyrir samningafund sem mun fara fram í Genf á fimmtudaginn. Witkoff, sérlegur sendifulltrúi Trump, og Kushner, tengdasonur forsetans, munu fara fyrir viðræðunum fyrir hönd Bandaríkjanna og leggja mat á það hvort frekari viðræður séu líklegar til að skila árangri. Samkvæmt Guardian hefur forsetinn sagt að ef samkomulag sé ekki í kortunum sé hann að íhuga takmarkaðar árásir á Íran til að setja þrýsting á þarlend stjórnvöld. Dugi það ekki til, komi til greina að ráðast í umfangsmeiri árásir til að koma klerkastjórninni frá. Heimildarmenn Guardian segja Trump hafa sótt fjölda funda um mögulega hernaðaríhlutun og þá hafi hann sótt ráðgjöf frá varaforsetanum JD Vance, utanríkisráðherranum Marco Rubio, varnarmálaráðherranum Pete Hegseth og yfirmönnum hernaðaryfirvalda og CIA. Vance er sagður hafa mun minni trú á aðgerðum gegn Íran en hann hafði á aðgerðum Bandaríkjanna í Venesúela og þá er Dan Caine, formaður herforingjaráðsins, sagður uggandi vegna lágrar birgðastöðu á eldflaugum í Patriot eldflaugavarnakerfi Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Íran hafa sagst munu hefna grimmilega fyrir árásir á landið og þá sagði leiðtoginn Ayatollah Ali Khamenei í síðustu viku að Íranir byggju yfir getunni til að sökkva herskipum Bandaríkjanna. Hér má finna ítarlega frétt Guardian um málið.
Íran Bandaríkin Donald Trump Hernaður Mest lesið Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Innlent Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Innlent Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Innlent Lausir endar í Edition-málinu Innlent Sambandið við Evrópu þurfi ekki að vera já eða nei spurning Innlent Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Erlent Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Erlent Sólveig Anna furðar sig á kjörum borgarstjóra Innlent Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa Innlent Fjörutíu milljarða greiðsla Kerecis snýr halla á ríkissjóði í afgang Innlent Fleiri fréttir Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews Sjá meira