Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. febrúar 2026 06:48 Hjalti hefur rekið 2guys á Laugavegi undanfarin ár en til hægri má sjá bíl fyrirtækisins þegar hann var sektaður. Starfsmenn hamborgarastaðarins 2guys við Hlemm í miðborg Reykjavíkur segjast varla geta affermt vörur án þess að eiga það á hættu að fá stöðumælasekt. Hafa þeir í sex skipti verið sektaðir um tíu þúsund krónur. Eigandi segist vera orðinn langþreyttur á skilnings- og áhugaleysi sem hann segir mæta sér hjá Reykjavíkurborg. Borgin segir reglurnar sambærilegar og í miðborgum í nágrannalöndunum. „
Þetta hefur aldrei verið vandamál fyrr en einhver ákvað allt í einu að setja steypuklumpa fyrir götuna og loka henni á mánudagsmorgni. Ég frétti af því þegar ruslabíllinn kemst ekki til okkar,“ segir Hjalti Vignisson eigandi 2guys í samtali við Vísi. Hann skrifaði í dag færslu á samfélagsmiðilinn Facebook þar sem hann segist mæta algjöru skilningsleysi af hálfu borgarinnar og bílastæðasjóðs Reykjavíkur. Vörulosun einungis heimil á morgnana 2guys er á Laugavegi, nánar tiltekið á horninu andstætt Hlemmi. Framkvæmdir hafa verið á svæðinu undanfarin ár og er svæðið nú að mestu hugsað fyrir gangandi vegfarendur. Í færslu sinni lýsir Hjalti því að vörulosun á götunni sé einungis heimil á milli sjö og ellefu á morgnana. Það henti rekstraraðilum engan veginn. „Á stuttum tíma hefur borgin nú sektað okkur um 60.000 kr. 6 x 10.000 kr. sektir, fyrir það eitt að koma með vörur sem eru nauðsynlegar fyrir reksturinn okkar utan þessa vörulosunartíma. Já þú last rétt, við leggjum fyrir utan, af fermum bílinn og á meðan kemur starfsmaður bílastæðasjóðs og sektar. Þeim er drull, við erum þarna eftir kl. 11 og þá segir excel skjalið að það sé bannað að koma með vörur. Kl. 11:41 vorum við að sækja stóra pöntun til að senda til viðskiptavinar og vörðurinn mætti, sektaði og hlustaði ekki á nein rök, klukkan væri meira en 11:00.“ Ráðþrota eftir samskiptin Hjalti segist hafa átt í löngum og ströngum tölvupóstsamskiptum við bílastæðasjóð. Þar segist hann hafa mætt algjöru skilningsleysi og engan samstarfsvilja. Þeim hafi verið tjáð að vörulosun væri heimil á milli sjö og ellefu. 2guys væru ekki hafnir yfir umferðarlög. „Ég er bara kominn með nóg. Sem rekstraraðila á þessu svæði í miðborginni þá líður manni einfaldlega bara eins og að Reykjavíkurborg geri allt til þess að leggja stein í götu manns, í stað þess að liðka fyrir og reyna að halda uppi starfsemi, þá er eins og það sé allt gert til þess að íþyngja þér og þínum rekstri.“ Hann segir raunveruleika málsins vera þann að 2guys muni alltaf þurfa visst aðgengi, það sé eðli veitingareksturs. „Það getur verið að það vanti tómata, ég bruna og græja það og kem með þá núna, kem með tómata en allt í einu kosta þeir tíu þúsund krónur aukalega því að bílastæðasjóður ákvað að sekta mig á meðan ég labba inn með þá, þar sem ég er mættur á merktum fyrirtækjabíl og stoppa örstutt.“ Laugavegur við Hlemm þegar þar voru framkvæmdir 2023. 2guys er úti á enda og til vinstri alveg við Hlemm. Vísir/Vilhelm Lýsir eftir samtalinu Hjalti segir reksturinn ganga vel, staðurinn sé vinsæll og tekur fram að Hlemmur líti vel út þó framkvæmdir hafa ílengst. Þær séu nú á fimmta ári en átti að vera lokið á þremur. Hann segir upplýsingar hafa verið af skornum skammti frá borginni og segist fyrst og fremst óska eftir því að tekið verði samtal við rekstraraðila. „Að það verði tekið spjall við okkur, rekstraraðila í kring, að það verði átt við okkur samtal. Í stað þess fáum við bara þetta svar, að svona sé vörulosunartíminn bara, þau hafa engan áhuga á að ræða við okkur, engan vilja og engan skilning. Þetta snýst bara um Excel skjalið.“ Hjalti bendir á að veitingastaðurinn hans njóti vinsælda og trekki fólk að í bæinn. Hugmyndin sé að skapa rými fyrir mannlíf. „Sem rekstraraðili í bænum þá er maður að lífga upp á bæinn, skapa atvinnu, borga gjöld og skatta, reyna að vera hluti af því að búa til stemningu en svo kemur borgin og segir bara: Ef þú vilt búa til stemningu verður þú að leggja úti á Granda, af því að við erum að taka öll bílastæði og svo þarftu að labba með fimmtíu kíló af vörum þaðan.“ Óráðlegt að blanda saman við umferð ökutækja Í svari við fyrirspurn Vísis vegna málsins segir Bjarni Rúnar Ingvarsson deildarstjóri samgangna hjá Reykjavíkurborg að síðustu ár hafi svæðum ætlað gangandi vegfarendum sérstaklega fjölgað umtalsvert í borginni, bæði göngugötum en ekki síður torgum. „Fjöldi gangandi á þessum svæðum fer almennt fjölgandi fram eftir degi, um kl. 11 er fjöldi gangandi orðinn c.a. 60% af hámarksfjölda yfir daginn og fer hratt fjölgandi eftir það (sjá t.a.m. talningabúnað á Laugavegi við Klapparstíg). Það er því óráðlegt að blanda saman umferð ökutækja og gangandi vegfarenda eftir þennan tíma, bæði m.t.t. umferðaröryggis en ekki síður virðingu fyrir því að svæðið eigi að vera fyrir gangandi fyrst og fremst.“ Bjarni bendir á að vörulosunartíminn sé sambærilegur og því sem gengur og gerist í nágrannalöndum. Vísir/Arnar Sambærilegur tími og í nágrannalöndum Bjarni segir að á sambærilegum svæðum í þeim löndum sem Íslendingar beri sig saman við, til að mynda Strikinu í Kaupmannahöfn, göngugötunni í Árósum, göngutgötum og torgum í Osló og öðrum miðborgum á Norðurlöndunum sé vöruafhending einnig almennt heimiluð til kl. 11 og sums staðar einungis til 9 á ákveðnum dögum. „Af þessu leiðir að á þeim svæðum sem gagngert eru ætluð gangandi og annarri umferð óvélknúinna ökutækja, þ.e. þar sem akstur vélknúinna ökutækja er almennt óheimill, hefur verið heimilaður akstur í tengslum við vöruafhendingu á skilgreindum tíma milli kl. 07.00-11.00 á virkum dögum og 08.00-11.00 um helgar og aðra helgidaga,“ skrifar Bjarni. „Til að tryggja bæði samræmi milli svæða og einfaldleika þá gildir sami tími til vöruafhendingar á öllum sambærilegum svæðum, þannig hefur þessi tími m.a. gilt á göngugötuhluta Laugavegar frá því að gatan var gerð að varanlegri göngugötu, og reyndar gildi sami tími þegar gatan var göngugata yfir sumrin þar á undan og lokuð fyrir bílaumferð með hliðum. Að þessu öllu sögðu þá eru bílastæði í grennd við allar göngugötur og torg í miðborginni sem eru aðgengileg allan sólarhringinn sem hægt er að nota, og svo er einnig heimilt að nota aðra samgöngumáta til afhendingar á vörum utan sérstaks vöruafhendingartíma ef virkilega á þarf, t.a.m. með svokölluðum cargo-hjólum.“
Veitingastaðir Reykjavík Bílastæði Stjórnsýsla Mest lesið „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Fleiri fréttir Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Sjá meira