Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. febrúar 2026 10:15 Runólfur Ólafsson Framkvæmdarstjóri FÍB „Hér á landi er ekkert gert,“ segir formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) í pistli um svifryksmengun sem hefur verið afar mikil undanfarnar vikur. Hann gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka. „
Í vikunni var greinarhöfundur að aka niður Hverfisgötu síðdegis í Reykjavík. Þá voru verktakar með stórvirkar steinsagir í gangi vegna framkvæmda við Vatnsstíg. Þykkur steinryksmökkur lá yfir Hverfisgötunni frá Vatnsstígnum og hélt áfram að berast þar sem ekkert var slegið af við sögunina. Þetta þykir eðlilegt verklag,“ segir Runólfur Ólafsson, formaður FÍB, í pistli á heimasíðu félagsins. Undanfarnar vikur hefur verið gefinn út fjöldi viðvarana vegna mikils svifryks á höfuðborgarsvæðinu og íbúar ítrekað beðnir um að hvíla einkabílinn. Rykbinding hefur farið fram nokkrum sinnum en þó er talsvert um mengun vegna óvenjulegs tíðarfars í janúar sem einkenndist af stilltu og þurru veðurfari. Í dag mælast loftgæðin góð á höfuðborgarsvæðinu, en gera má ráð fyrir því að ekki séu margir á ferli á laugardagsmorgni. Grípa rykið strax Runólfur ber höfuðborgarsvæðið saman við skandinavísk lönd. Þar séu strangari kröfur, sér í lagi fyrir verktaka um að sinna rykstjórnun sem sé sjálfsagður hluti af vinnuvernd og umhverfisstjórnun. „Í Skandinavíu er lögð áhersla á að grípa rykið um leið og það verður til og áður en það fer út í andrúmsloftið,“ segir hann og vísar meðal annars í tæki á byggingarsvæðum tengdum öflugum iðnaðarryksugum. „Yfirvöld á hinum Norðurlöndunum geta stöðvað framkvæmdir tafarlaust ef ryk fer yfir viðmiðunarmörk eða ef verktaki getur ekki sýnt fram á fullnægjandi rykbindingu. Hér á landi er ekkert gert.“ Þrífa þurfi göturnar Runólfur bendir einnig á að flestir norðlægir bæir og borgir viðhafi ákveðið verklag um hreinsun gatna á veturna sem miðast við stöðug þrif um árið. Um leið og hitastigið fer yfir frostmark séu ökutæki sem þrífa götur og gangstíga send út. „Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er gert ráð fyrir að stofnbrautir séu hreinsaðar fjórum sinnum á ári og aðeins einn þvottur á gatnamótum og hellulögðum eyjum. Fyrsta hreinsunin í ár var óvenju snemma á ferðinni enda ástandið orðið slæmt,“ segir Runólfur. „En það var farið svo seint af stað með hreinsunina að ekki tókst að klára verkið með fullnægjandi hætti áður en hitinn fór undir frostmark. Þetta verklag er þvert á viðmið á hinum Norðurlöndunum og loftslags- og lýðheilsumarkmið stjórnvalda.“
Loftgæði Vegagerð Reykjavík Umferð Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Fleiri fréttir Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Sjá meira