Segir uppspuna að Mogginn sé að hætta að koma út á prenti Jakob Bjarnar skrifar 20. febrúar 2026 10:43 Sigurbjörn ætlar að þeir Ólafur Arnarson og Helgi Magnússon hafi verið komnir djúpt ofan í flöskuna þegar þeim tókst að kokka það upp að til stæði að hætta að prenta Morgunblaðið. vísir/elín guðmunds/vilhelm Sigurbjörn Magnússon formaður stjórnar Árvakurs, sem gefur út Morgunblaðið, hló þegar undir hann voru bornar kenningar sem viðraðar voru í „Orðinu á götunni“ á DV og Eyjunni þess efnis að til stæði að Morgunblaðið kæmi aðeins út í vefútgáfu og hætt verði að prenta blaðið. „
Það er enginn fyrirætlun um það. Við erum „still going strong“ að prenta blaðið og það hefur verið nokkuð feitt og gott upp á síðkastið. Blaðið í gær og í dag, stórt aukablað um börn og ég á ekki von á öðru en að helgarblaðið verði gott líka,“ segir Sigurbjörn í samtali við Vísi. Hann segir þetta uppspuna frá rótum. Uppspuninn sem hann vísar til og það sem Vísir vildi athuga með eru hugleiðingar sem finna má í efnislið sem kallast Orðið á götunni þar sem menn eru að velta fyrir sér framtíð Morgunblaðsins. Þar segir meðal annars: „Frá fólki sem hefur yfirgefið Árvakur heyrist að ekki þyrfti að koma á óvart þótt yfirstandandi ár sé síðasta árið sem Morgunblaðið komi út á pappír og verði Mogginn eftir það einungis aðgengilegur í vefútgáfu. Slík þróun hefur verið að ryðja sér til rúms um allan heim hin síðari ár. Pappír er á hröðu undanhaldi og mun brátt heyra sögunni til hvað varðar alla blaðaútgáfu.” Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins. Hann varð 78 ára á dögunum, sá langelsti sem gengt hefur ritstjórastöðunni, en engar fréttir er að segja af því hvort hann sé að fara að setjast í helgan stein eða ekki.vísir/anton brink Sigurbjörn gefur lítið fyrir þessar vangaveltur: „Þetta er alger tilbúningur, eins og maður segir. Það hefur engin umræða í þessa veru farið fram hjá Árvakri. Við höfum farið í ýmsar hagræðingaraðgerðir í erfiðum rekstri fjölmiðla en ekkert í þessa veru. Þetta er bara einhver tilbúningur hjá þeim Óla Arnar og Helga, þeir hafa verið komnir djúpt ofan í flöskuna þegar þeir kokkuðu þetta upp. Þetta er varla svaravert.“ Er á Sigurbirni að merkja að hann sé sannfærður um að Ólafur Arnarsson blaðamaður komi að nafnlausu pistlunum „Orðið á götunni“ sem oft hafa verið umdeildir. Ólafur og Helgi Magnússon, eigandi DV, eru samherjar. Engin tíðindi af starfslokum Davíðs Sigurbjörn segir eindreginn vilja standa til þess hjá stjórn Árvakurs að áfram komi út dagblað á Íslandi. „Það væri mikill missir ef svo væri ekki.“ Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins er kominn á afar virðulegan aldur og varð 78 ára í janúar. Er hann sá langelsti sem gegnt hefur stöðu ritstjóra Morgunblaðsins. Spurður hvort hann fari ekki að láta af störfum, aldurs vegna, segir Sigurbjörn ekkert sem bendi til þess. „Engar fréttir af því.“
Fjölmiðlar Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Sjá meira