Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. febrúar 2026 06:00 Björn Brynjúlfur Björnsson er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Vísir/Vilhelm Veikindaréttur opinberra starfsmanna er mun ríkari en í einkageiranum, að því er segir í nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Þar segir að eftir sex mánuði í starfi eigi opinber starfsmaður rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum en starfsmaður með sama starfsaldur í einkageiranum. Samhliða því séu veikindafjarvistir tvöfalt algengari hjá hinu opinbera.
Úttekt Viðskiptaráðs birtist nú í morgun. Veikindaréttur sé réttur sem ákvarðaður sé í samningum milli atvinnurekenda og launþega og veiti launþegum rétt á launum frá vinnuveitendum vegna veikinda eða slysa. Afar misjafnt sé eftir kjarasamningum hversu ríkur veikindarétturinn sé. Þar skipti mestu máli hvort starfsmaðurinn starfi hjá hinu opinbera eða í einkageiranum. Stytting vinnuvikunnar hafi ekki fækkað veikindadögum „Eftir sex mánuði í starfi hefur opinber starfsmaður 119 daga í veikindarétt sem er sjöfaldur veikindaréttur miðað við einkageirann. Veikindaréttur opinberra starfsmanna eftir 6 mánuði er þá aðeins þremur dögum minni en veikindaréttur starfsmanna í einkageiranum eftir 5 ár í starfi,“ segir í úttektinni. Þá segir þar að fjarvera opinberra starfsmanna vegna veikinda sé tvöfalt algengari en í einkageiranum. Um sex prósent greiddra vinnustunda opinberra starfsmanna séu vegna veikindafjarvista, samanborið við 3,1 prósent í einkageiranum. Tölur frá Hagstofunni sýna að meðalfjöldi veikindadaga í einkageiranum var 8 dagar á meðan veikindadagar hjá hinu opinbera voru sextán dagar, eða tvöfalt fleiri. „Yfirlýst markmið með styttingu vinnuvikunnar var m.a. að fækka veikindadögum opinberra starfsmanna, með því að stytta vinnutíma og draga úr álagi. Staðan í Reykjavík bendir til þess að þetta markmið hafi ekki náðst þar sem fjöldi veikindadaga hefur haldist óbreyttur eftir innleiðingu styttingar vinnuvikunnar. Veikindahlutfall starfsmanna Reykjavíkurborgar nam um 7,5% árið 2024, sem jafngildir um tuttugu dögum í veikindafjarvistir á árinu.“ Umframveikindi kosti nítján milljarða á ári Þá segir í úttekt Viðskiptaráðs að þessar auknu fjarvistir vegna veikinda valdi miklum kostnaðarauka fyrir hið opinbera. Heildarlaunaútgjöld ríkis og sveitarfélaga hafi verið um 650 milljarðar árið 2024. „Út frá því má áætla að beinn árlegur kostnaður hins opinbera vegna veikinda umfram það sem gerist í einkageiranum nemi um 19 milljörðum á ári. Þar af falla til um 4,5 milljarðar hjá Reykjavíkurborg.“ Hér sé ótalinn óbeinn kostnaður vegna raskana á starfsemi, yfirvinnu annarra starfsmanna, tímabundinna ráðninga og minni framleiðni. Þegar lykilstarfsfólk sé fjarverandi skapist álag á samstarfsfólk, þjónustustig lækki og verkefni tefjist. Umframveikindin séu því ekki aðeins kostnaðarsöm í krónum talið heldur geti þau einnig grafið undan gæðum opinberrar þjónustu. Heildaráhrifin séu því meiri en framangreind upphæð gefi til kynna. Öðlast árs veikindarétt eftir fimm daga mætingu „Opinberir starfsmenn sem náð hafa 18 ára starfsaldri þurfa einungis að mæta til vinnu í fimm daga til að öðlast veikindarétt í eitt ár. Opinber starfsmaður í þessari stöðu getur því tilkynnt um samfelld veikindaforföll fyrir utan eina viku á ári,“ segir í úttektinni. „Opinberir starfsmenn sem veikjast í orlofi teljast heldur ekki vera í orlofi þá daga sem þeir eru veikir. Til að starfsmaður í einkageiranum geti nýtt veikindadaga í orlofi þarf viðkomandi að tilkynna vinnuveitanda sínum um veikindin á fyrsta degi þeirra, vera veikur í a.m.k. þrjá daga samfellt og vinnuveitandi hefur jafnframt rétt á að láta lækni vitja starfsmannsins.“ Segir Viðskiptaráð að lokum að það sé mat þess að ekki séu málefnaleg rök fyrir því að veikindaréttur sé ríkari hjá opinberum starfsmönnum samanborið við einkageirann. Það samrýmist illa grundvallarsjónarmiði um jafnræði að opinberir starfsmenn sitji skör hærra en starfsmenn í einkageiranum á þessu sviði. „Þessi mismunur veldur einnig skekkju í opinberri umræðu, þar sem ekki er tekið tillit til hans við samanburð á launakjörum hjá hinu opinbera og í einkageiranum. Ráðið leggur því til að veikindaréttur opinberra starfsmanna verði færður til jafns við einkageirann. Það er einnig heppilegra fyrirkomulag þegar kemur að langtímaveikindum. Þau geta í dag lagst þungt á fjárhag opinberra stofnana en væru þess í stað færð til viðeigandi kerfa, þ.e. örorku- og heilbrigðiskerfisins.“
Vinnumarkaður Rekstur hins opinbera Stéttarfélög Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Sjá meira