Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Lovísa Arnardóttir skrifar 17. febrúar 2026 11:26 Tillögurnar voru kynntar á fundi borgarráðs í morgun. Vísir/Vilhelm Í nýrri Reykjavíkurleið fá allir einstæðir foreldrar afslátt. Ekki verður rukkað fyrir 36 tíma leikskóladvöl. Markmið með breytingum er að fá foreldra til að skrá raundvalartíma barna sinna. Foreldrar skrá skráningardaga í september og janúar og hver dagur mun kosta 5000.
Samkvæmt nýjum tillögum fá einstæðir eða einstakir með 8 milljónir eða minna í árslaun 75 prósent afslátt en fólk í sambúð með undir 11 milljónum fær 40 prósenta afslátt. Einstæðir með 8–13 milljónir í árstekjur fá 50 prósenta afslátt og einstæðir með 13 milljónir eða meira fá 40 prósenta afslátt. Fólk í sambúð með ellefu milljónir eða minna í árstekjur fær 40 prósenta afslátt, sambúðarfólk með 11 til 18 milljónir í árstekjur fær 20 prósenta afslátt og fólk með meira en 18 milljónir í árstekjur fær engan afslátt. Þetta kom fram í kynningu borgarinnar á Reykjavíkurleiðinni. Borgarráð hefur samþykkt tillögurnar og þær verða því næst teknar fyrir í borgarstjórn. Líf Magneudóttir, formaður stýrihópsins og oddviti Vinstri grænna, sagði í kynningu sinni að það hefði tekið langan tíma að komast að niðurstöðu. Markmiðin með breytingunum væru skýr, það þyrfti að grípa til aðgerða því leikskólar Reykjavíkur væru ekki lengur það flaggskip sem þeir hefðu áður verið. Hún sagði starfsfólk vera undir miklu álagi og að það væri að leita annað vegna þeirra, eins og í sveitarfélög þar sem búið er að kynna breytingar, til dæmis Kópavog. „Þetta var ekki einfalt verkefni en við lögðum mikið upp úr því að vera í góðu samráði,“ sagði Líf og að það hefði verið víðtækt samráð við leikskólastjórnendur, foreldra, verkalýðsfélög og vinnumarkað um tillögurnar. Hún segir tillögurnar sem eru kynntar í dag ekki þær sömu og voru kynntar í haust. Markmiðið væri að ná fram umbótum í leikskólastarfi. Líf Magneudóttir er formaður stýrihóps um tillögurnar. Vísir/Vilhelm Þau hafi skoðað hvernig önnur sveitarfélög hafi gert þetta og látið framkvæmda jafnréttismat og vilji alls ekki að breytingar skekki jafnrétti kynjanna. Þau hafi þannig lagt sig mikið fram um að ná fram réttlátum breytingum sem halli ekki á kynin og hafi til dæmis lagt sig fram um að breytingarnar hjálpi einstæðum og einstökum foreldrum. Líf segir breytingarnar ekki einu aðgerðirnar sem þarf að ráðast í til að bæta leikskólakerfið. Þessar tillögur séu fyrsti áfangi og næstu áfangar komi á næsta kjörtímabili. Von þeirra sé að breytingarnar geti haft raunveruleg áhrif. „Við erum að krefjast einhvers af foreldrum barna,“ sagði Líf og að þau hefðu gert miklar kröfur til starfsfólks í langan tíma, það hefði hlaupið hraðar og tekið á sig álag og það væri komið að þolmörkum þeirra. „Leikskólinn er ekki bara hús, hann er starfsfólkið sem er í húsinu,“ sagði Líf. Tillögurnar voru kynntar á fundi borgarráðs í morgun. Vísir/Vilhelm Helga Þórðardóttir, oddviti Flokks fólksins, tók þá við og sagði að með breytingunum ætti að standa með barnafjölskyldum og starfsfólki. Hún fór yfir markmið breytinganna og ferlið sjálft og sagði að núna væri verið að kynna nýjar tillögur. Í fyrri tillögum var gert ráð fyrir 25 prósenta afslætti, skráningardagagjaldi og niðurfellingu gjalda í maí ef skráningardagar yrðu ekki nýttir. Ekkert vistunargjald fyrir 36 stunda vistun. Hvatning til að stytta dvalartíma á föstudögum, það er dregið úr gjaldskrárhækkunum og tekjuviðmið hækkuð til muna. Tekjutengdir afslættir eru hækkaðir og skráning á skráningardögum í september og janúar. Auk þess er í tillögunum að finna nýjar tillögur um systkinasameingar, umsjónarmenn húsnæða, aukna íslenskukennslu fyrir starfsfólk og umsækjendur með annað móðurmál en íslensku. Þá er gert ráð fyrir Blíðri byrjun sem er nýtt verkefni sem snýr að því að nýtt starfsfólk fái tveggja daga aðlögun áður en það hefur formlega störf. Þá er gert ráð fyrir einum degi í vetrarleyfi til samræmis við grunnskóla. Samkvæmt nýrri gjaldskrá greiðir fólk 15.290 fyrir fæðisgjald og svo fyrir 38 tíma greiðir það sjö þúsund, fyrir 40 stundir greiðir það 18 þúsund og svo fyrir 42,5 stundir greiðir það 38 þúsund. Mest greiðir fólk 53.290 krónur fyrir eitt barn en 68.580 fyrir tvö börn. Í tilkynningu frá borginni um breytingarnar kemur fram að ein af stærstu breytingunum í nýju tillögunum sé 36 tíma gjaldfrjáls vistun. Þá greiða foreldrar aðeins fyrir fæðisgjald. Tillögurnar frá Reykjavíkurborg: 36 tíma gjaldfrjáls vistunEin af stærstu breytingunum er að boðið verður upp á 36 tíma gjaldfrjálsa leikskóladvöl á viku. Foreldrar greiða eingöngu fyrir fæði ef dvalartíminn er innan þessara marka. Þetta getur verið verulegur ávinningur fyrir stóran hóp foreldra og lækkað gjöld hjá mörgum fjölskyldum. Sparnaður getur numið allt að 168 þúsund á ári. Hóflegt gjald fyrir 38 tíma vistun Gjald fyrir 38 tíma vistun verður mjög hóflegt, aðeins 7.000 krónur á mánuði, auk fæðisgjalds. Þetta er umtalsvert lægra en í fyrri tillögum og var tekið sérstaklega tillit til athugasemda foreldra í samráði. Gjaldskrá - reiknivél Aukin aðstoð við einstæða foreldra og tekjulágar fjölskyldur Nýir afsláttarflokkar eru settir inn fyrir þau sem þurfa lengri vistun og eru sérstaklega hannaðir til að styðja einstæða foreldra og tekjulág heimili. Með þessu er brugðist við helstu ábendingum sem bárust í samráðinu. Ekki er dregið úr þjónustu. Hámarksdvalartími helst óbreyttur – allt að 42,5 klukkustundir á viku – og engar breytingar eru gerðar á heildarfjölda leikskólaplássa. Þetta þýðir að fjölskyldur sem þurfa lengri vistun hafa áfram þann möguleika. Bætt starfsumhverfi og meiri stöðugleiki Markmið breytinganna er að bæta starfsaðstæður og stöðugleika í leikskólum. Á undanförnum árum hafa sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu stytt dvalartíma barna og samkeppni um starfsfólk hefur leitt til áskorana í Reykjavík. Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð
Leikskólar Reykjavík Mest lesið Vara við því að færð spillist í kvöld Innlent Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent Annar bíll möglega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Innlent „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Innlent Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Lögreglan leitar manns Innlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir íslenskt samfélag Innlent Kynna breytta Reykjavíkurleið Innlent Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Innlent Fleiri fréttir Kvikuhlaup og eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Grásleppan hleypir upp störfum þingsins Hættur sem framkvæmdastjóri Framsóknar Fyrrverandi markvörður vill fram fyrir Miðflokk Viðgerð vegna eldsvoða að ljúka og Landspítali fær pláss Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Stærstur hluti foreldra falli algjörlega utan afsláttarkerfis Lögreglan leitar manns Annar bíll möglega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Ný leið í leikskólamálum kynnt og von á snjókomu í kvöld Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Körfuboltastjarna íhugar framboð í Garðabæ Íhugar alvarlega formannsframboð hjá Vinstri grænum Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Komi öllum við hverjir kaupa vændi eða ætli að gera það Vara við því að færð spillist í kvöld Sundhöllinni lokað á meðan píparar ráða ráðum sínum Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Kynna breytta Reykjavíkurleið Bein útsending: Ásgeir og Þórarinn mæta fyrir þingnefnd Dregur líklega úr svifryksmengun seint í dag Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Grunaður fíkniefnasali stöðvaður fyrir að tala í síma Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Nýr samfélagsmiðill bara fyrir íslenskt samfélag Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Sjá meira