Vísbendingar um gerviverktöku í geiranum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 14:46 Kerið í Grímsnesi er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Vísir/Vilhelm Vísbendingar eru um gerviverktöku meðal leiðsögumanna og hópbifreiðastjóra samkvæmt vinnustaðaeftirliti ASÍ. Þeir sem starfi sem slíkir séu með skerta réttarstöðu og tapi á grundvallarréttindum. Tugir ferðaþjónustufyrirtækja voru ekki skráð á fyrirtækjaskrá Skattsins.
Þetta kemur fram í skýrslu vinnustaðaeftirlits ASÍ og stéttarfélaganna sem fylgdust með fólksflutningum og leiðsögn í ferðaþjónustu sumarið 2025, í samvinnu við lögreglu, Skattinn og Vinnueftirlitið. Ákveðið var að ráðast í eftirlit eftir ábendingar frá leiðsögumönnum um ófullnægjandi starfshætti. Eftirlitið fór fram við vinsæla ferðamannastaði á við Gullfoss, Geysi og Þingvelli. Í ljós komu vísbendingar um gerviverktöku en samkvæmt þeim 404 sem rætt var við er verktaka útbreidd í ferðaþjónustu, einkum meðal þeirra sem sinna leiðsögn og hópbifreiðaakstri. Viðmælendur voru einnig spurðir hvaða fyrirtæki þeir störfuðu hjá og í ljós kom að alls 42 fyrirtæki voru starfandi en ekki skráð í fyrirtækjaskrá Skattsins. „Gerviverktaka er þegar einstaklingar starfa sem verktakar að formi til, þótt vinnufyrirkomulag og aðstæður beri skýr einkenni launasambands. Verkalýðshreyfingin lítur á slíkt sem alvarlegt frávik frá heilbrigðum vinnumarkaði, þar sem kostnaður, áhætta og ábyrgð eru færð frá atvinnurekendum yfir á launafólk,“ segir í skýrslunni. Verktakarnir séu þá almennt með of lágt verktakaálag á taxtalaun eða um tuttugu til þrjátíu prósent. VR hefur birt upplýsingar á vefsíðu sinni sem segja að lemmtn þurfi verktaki að leggja um fimmtíu prósent ofan á lágmarkstaxta fyrir vinnuframlag sitt. Upp kom dæmi um bílstjóra í verktöku sem hafði ekið í 37 daga samfleytt, án frídags. Nokkur tilvik komu upp þar sem reglur um hvíldartíma ökumanna hafa ekki verið virtar. Umræddur bílstjóri fékk til að mynda skammvinna hvíld hvern sólahring, stundum aðeins fjórar klukkustundir. Fararstjórar sem þykjast vera leiðsögumenn Við eftirlitið kom einnig í ljós að fararstjórar starfa í sumum tilfellum sem leiðsögumenn án tilskilinna atvinnuleyfa. Það sé sérstaklega í ferðum Kínverja hingað til lands en samkomulag milli Íslands og Kína kveður á að kínverskar ferðaskrifstofur, sem hafa fengið viðurkenningu kínverskra stjórnvalda, beri ábyrgð á hópnum á meðan þeir dvelja hérlendis. Fararstjórinn eigi samkvæmt samkomulaginu fyrst og fremst að sjá um skipulagsmál og tryggja að allir meðlimir hópsins yfirgefi landið að ferð lokinni. Hins vegar urðu eftirlitsfulltrúar varir við að fararstjórarnir væru í raun að sinna hlutverki leiðsögumanns. „Í framkvæmd samkomulagsins virðist með tímanum hafa skapast svigrúm til rýmri túlkunar á þeim hlutverkum sem samkomulagið tekur til, sem ekki fellur að fullu að þeim reglum sem gilda á íslenskum vinnumarkaði um leiðsögn ferðamanna og atvinnuréttindi útlendinga.“
ASÍ Stéttarfélög Ferðaþjónusta Ferðalög Vinnumarkaður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira