Innlent

Þriggja bíla á­rekstur við Sprengi­sand

Eiður Þór Árnason skrifar
Vefmyndavél Vegagerðarinnar sýnir að mikil truflun er á umferð um Sæbraut.
Vefmyndavél Vegagerðarinnar sýnir að mikil truflun er á umferð um Sæbraut. Vegagerðin

Þriggja bíla árekstur varð á horni Bústaðavegs og Reykjanesbrautar við Sprengisand nú síðdegis og var minnst einn fluttur á slysadeild. Betur fór en á horfðist, að sögn slökkviliðs en búast má við truflunum á umferð þangað til frágangi lýkur á vettvangi.

Tilkynning barst um slysið um klukkan hálf fjögur og þarf að flytja ökutæki á brott með krókabíl. Þetta segir Sigurjón Ólafsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í samtali við fréttastofu. Einnig þurfi að þrífa veginn. 

„Þetta tekur vonandi ekki mjög langan tíma.“

Vefmyndavélar Vegagerðarinnar sýna að nokkuð er um umferðatruflanir á stofnæðum í Reykjavík. 

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×