Innlent

And­lát í Eyjum til rann­sóknar og listería á Vitatorgi

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hádegismynd

Í hádegisfréttum fjöllum við um andlát í Vestmannaeyjum sem nú er til rannsóknar hjá lögreglu.

Tveir voru handteknir í gær vegna málsins sem kom upp á hjúkrunarheimili í eyjunum.

Einnig tökum við stöðuna á Listeríu sem fannst í mat í framleiðslueldhúsi Reykjavíkurborgar í gær. Fimm einstaklingar hafa veikst en þó er ekki búið að skera úr um hvort listeríusmiti sé um að kenna í öllum tilfellum.

Að auki ræðum við við afbrotafræðing sem segir þörf á að herða eftirlit með unglingahópum sem komi saman við verslanir á kvöldin og um helgar.

Í sportinu fjöllum við um bikarpekknina í körfu en undanúrslitin fara fram í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×