Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Agnar Már Másson skrifar 2. febrúar 2026 19:04 Tvíburasysturnar fæddust eftir keisaraskurð á Íslandi í september. Tveimur vikum síðar voru þær sendar frá Íslandi til Króatíu ásamt fjölskyldu sinni. Þær verða að óbreyttu senda til Rússlands þar sem fjölskylda þeirra hefur sætt pólitískum ofsóknum. Aðsend Rússnesk flóttamannafjölskylda sem íslensk stjórnvöld vísuðu úr landi tveimur vikum eftir keisaraskurð verður að óbreyttu send til Rússlands. Króatísk stjórnvöld hafa synjað móðurinni og börnunum um alþjóðlega vernd. Örlög föðurins, sem hefur sætt pólitískum ofsóknum í Rússlandi, eru óljós þar sem fjölskyldunni var sundrað í Króatíu.
Vísir hefur undir höndum úrskurð króatískra stjórnvalda í máli Mariiam Taimovu og barna hennar þriggja, en þeim var öllum vísað brott frá Íslandi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar í lok september 2025, aðeins tveimur vikum eftir að Taimova hafði fætt tvíburadætur sínar eftir keisaraskurð. Henni er gert að yfirgefa Evrópska efnahagssvæðið innan 20 daga, annars verði hún flutt brott með valdi, samkvæmt úrskurðinum. Synjunin nær til Taimovu, 24 ára móður frá rússneska fylkinu Dagestan í Rússlandi, og barnanna þriggja; hins tveggja ára Musa og hinna fjögurra mánaða tvíburasystra Animu og Halimu. Örlög fjölskylduföðurins Gadzhis Gadzhiev eru óljós en hann var aðskilinn frá fjölskyldu sinni við komuna til Króatíu í október 2025 og dúsir nú í lokuðu búsetuúrræði í Króatíu. Ekki liggur fyrir niðurstaða í hans máli. Hafi ekki sannað að hún væri ekki örugg í Dagestan Króatísk stjórnvöld mátu meðal annars svo, samkvæmt úrskurðinum, að óbreyttum borgurum stafaði engin hætta í Dagestan. Auk þess töldu flóttamannayfirvöld í Króatíu að framburður Taimovu væri ekki trúverðugur og að hún hefði ekki sýnt fram á haldbær gögn sem sönnuðu að hún væri ekki örugg í heimafylkinu. Alþjóðasamtökin Amnesty vöruðu aftur á móti við því í janúar 2024 að rússneskar öryggissveitir beittu trúarlega minnihlutahópa í Norður-Kákasus, svo sem múslima, ofbeldi og pyntingum og stimpluðu þá gjarnan sem öfgamenn að tilefnislausu, en fjölskyldan sem hér um ræðir eru múslimar. Amnesty benti einnig á að fólk sem flýr herkvaðningu væri í verulegri hættu á illri meðferð. Hefur tuttugu daga til að fara sjálf til Rússlands Arndís Ósk Magnúsdóttir, lögfræðingur fjölskyldunnar, segir við Vísi að fréttirnar af synjuninni hafi borist fjölskyldunni í morgun og að Taimova og börnin hafi nú tuttugu daga til þess að snúa aftur til Rússlands, nema þau beri ákvörðunina undir dómara innan mánaðar, ella muni stjórnvöld sjálf vísa fjölskyldunni úr landi. Musa Taimov, sonur þeirra Gadzhievs og Taimovu.Aðsend Fjölskyldan var í lok september send frá Íslandi til Króatíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, sem segir að fyrsta Schengen-landið sem hælisleitendur fara til beri meginábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd. Í úrskurðinum kemur lítið fram um stöðu barnsföðurins Gadzievs enda er hans mál aðskilið máli Taimovu, en þau eru ekki gift opinberlega þó trúarleg athöfn þess efnis hafi verið haldin fram, að því er fram kemur í úrskurðinum. Samkvæmt úrskurði segist Taimova hafa sleppt opinberri skráningu hjónabandsins af ótta við að opinber skráning myndi draga að sér athygli stjórnvalda þar sem Gadziev hefði setið í fangelsi. Ættingjar fengu vernd á grundvelli ofsókna Gadzhiev er sagður hafa sætt fangelsisvist í Rússlandi fyrir að gagnrýna rússnesk stjórnvöld. Móðir hans og systkini eru með varanlegt dvalarleyfi á Íslandi og fengu alþjóðlega vernd 2018 vegna pólitískra ofsókna en móðir Gadzhievs tjáði sig fremur opinberlega gegn rússneskum stjórnvöldum árið 2017 þegar hún kallaði Vladimír Pútín Rússlandsforseta „hryðjuverkamann“ á mótmælafundi. Á þessum tíma sat Gadzhiev í fangelsi í Síberíu en hann er sagður hafa verið hnepptur í varðhald af rússnesku leyniþjónustunni (FSB). Gadzhiev var þar í fimm ár og eftir að hafa lokið fangelsisvistinni komst hann úr landi með því að taka upp eftirnafn móður sinnar, fá nýtt vegabréf og flaug ásamt Mariiam til Tyrklands 2022 þar sem þau fengu tímabundið dvalarleyfi í ár. Króatísk stjórnvöld tóku fram í úrskurði sínum að Mariam þætti ekki í hættu í Dagestan þar sem hún hefði snúið aftur til Rússlands 2023 – eftir að dvalarleyfi þeirra í Tyrklandi rann út og umsókn um framlengingu var hafnað – dvalið þar í nokkra mánuði til að fæða son sinn þar og síðan farið aftur úr landi án vandræða. Tvíburarnir án ríksborgararéttar Til að komast til Íslands í desember 2024 fór fjölskyldan í gegnum Króatíu. Tveimur dögum síðar flugu þau frá Búdapest til Íslands og sóttu um dvalarleyfi. Hins vegar vísuðu íslensk stjórnvöld í Dyflinnarreglugerðina. Það gerðist einungis mánuði eftir að hjónin eignuðust tvíbura og þurfti Mariiam að fara í keisaraskurð. Þá höfðu tvíburarnir ekki fengið viðeigandi skjöl og fengu hjónin þær upplýsingar að þeim yrðu útveguð skjöl í Króatíu. Króatíski miðillinn Novosti sagði í síðustu viku að tvíburarnir væru enn ekki komnir með fullnægjandi skilríki og þeir væru í eins konar lagalegu tómarúmi. Útlendingastofnun sagði hagsmunum barnanna ekki stefnt í hættu Eftir að Vísir fjallaði um málið í október gaf Útlendingastofnun út yfirlýsingu þess efnis að ekkert benti til þess að fjölskyldan myndi sæta ómannúðlegri meðferð í Króatíu og að hagsmunum barnanna væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til Króatíu. Því voru flóttamennirnir aldeilis ósammála en króatískir miðlar fjölluðu nýverið um hungurverkfall Gadzievs og 54 annarra flóttamanna í Ježevo-stöðinni til að mótmæla frelsissviptingu sinni. Feðgarnir Gadzhi Gadzhiev og Musa Taimov.Aðsend Í yfirlýsingu sem fréttastofa hefur undir höndum lýstu flóttamennirnir því hvernig starfsmenn öryggissveitar kæmu inn í móttökustöðina og sögðu að ef verkfallinu yrði ekki slúttað myndu grímuklæddir lögreglumenn mæta, beita hælisleitendurna ofbeldi og flytja þá í aðrar móttökustöðvar eða fangelsi. Einungis fjórir hefðu haldið mótmælunum áfram, þar á meðal Gadzhiev, en allir fjórir kæmu frá norðurhluta Kákasusar í Rússlandi. Árið 2023 bárust Króatíu ríflega átta þúsund umsóknir um alþjóðlega vernd frá Rússum en þar af voru 23 samþykktar, samkvæmt gagnagrunni AIDA.
Flóttamenn Flóttafólk á Íslandi Rússland Króatía Tengdar fréttir Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Dómsmálaráðherra segist hafa óskað eftir upplýsingum um aðstæður hælisleitenda í Króatíu í kjölfar umfjöllunar um fimm manna fjölskyldu sem vísað var frá Íslandi. Fjölskyldufaðirinn dvelur í lokaðri móttökustöð en móðirin er ein með börnin þrjú. 27. janúar 2026 14:14 Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Fjölskyldu, sem var vísað héðan úr landi skömmu eftir barnsburð, hefur verið sundrað. Móðirin er nú ein með börnin þrjú en faðirinn er fastur í lokaðri móttökustöð og tekur þátt í hungurverkfalli. Nýfæddu tvíburarnir lifa í eins konar lagalegu tómarúmi. 25. janúar 2026 16:12 Íslenskur Pútínismi Hér hefur verið framið ólýsanlegt hermdarverk, svo ómannúðlegt að það á sér enga málsvörn. Ekki einhvers staðar langt í burtu, ekki í Rússlandi, heldur hér á Íslandi. Vestrænir miðlar spyrja okkur gjarnan sömu spurningarinnar: „Af hverju tala svo fáir Rússar gegn Pútín?” 13. október 2025 20:00 Útlendingastofnun: Ekkert bendi til ómannúðlegrar meðferðar í Króatíu Útlendingastofnun segir ekkert benda til þess að rússneskri fjölskyldu sem var á dögunum vísað úr landi fái ekki vandaða og efnislega málsmeðferð í Króatíu. Hagsmunum tveggja vikna gamalla tvíbura hafi ekki verið stefnt í hættu þegar þeir voru sendir úr landi ásamt fjölskyldu þeirra á dögunum. 8. október 2025 16:34 Miður að börn fylgi foreldrum en ekki öfugt Gjörðir íslenskra stjórnvalda gætu leitt til þess að börn verði tekin af foreldrum sínum, sem mögulega bíður fangelsisvist. Fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar segir aumt að stjórnvöld sendi tveggja vikna börn úr landi undir forsæti flokksins. 5. október 2025 20:52 Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Tveggja vikna tvíburum og tveggja ára bróður þeirra var á mánudag vísað frá Íslandi ásamt foreldrum sínum og þau send til Króatíu. Amma þeirra, frændi og frænka hafa haft alþjóðlega vernd hér á landi í nokkur ár en lögfræðingur fjölskyldunnar segir Útlendingastofnun hafa neitað að upplýsa króatísk stjórnvöld um mögulega fjölskyldusameiningu. 1. október 2025 21:38 Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Mikillar gremju gætir innan þingflokks Samfylkingarinnar vegna umdeildrar brottvísunar á tveggja vikna tvíburasystrum í vikunni. Þingmaður flokksins veltir því fyrir sér hvort útlendingalögin á Íslandi séu nógu mannúðleg. 4. október 2025 19:08 Mest lesið Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Innlent Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Erlent Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Erlent Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Innlent Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent Fleiri fréttir Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Sjá meira
Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Dómsmálaráðherra segist hafa óskað eftir upplýsingum um aðstæður hælisleitenda í Króatíu í kjölfar umfjöllunar um fimm manna fjölskyldu sem vísað var frá Íslandi. Fjölskyldufaðirinn dvelur í lokaðri móttökustöð en móðirin er ein með börnin þrjú. 27. janúar 2026 14:14
Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Fjölskyldu, sem var vísað héðan úr landi skömmu eftir barnsburð, hefur verið sundrað. Móðirin er nú ein með börnin þrjú en faðirinn er fastur í lokaðri móttökustöð og tekur þátt í hungurverkfalli. Nýfæddu tvíburarnir lifa í eins konar lagalegu tómarúmi. 25. janúar 2026 16:12
Íslenskur Pútínismi Hér hefur verið framið ólýsanlegt hermdarverk, svo ómannúðlegt að það á sér enga málsvörn. Ekki einhvers staðar langt í burtu, ekki í Rússlandi, heldur hér á Íslandi. Vestrænir miðlar spyrja okkur gjarnan sömu spurningarinnar: „Af hverju tala svo fáir Rússar gegn Pútín?” 13. október 2025 20:00
Útlendingastofnun: Ekkert bendi til ómannúðlegrar meðferðar í Króatíu Útlendingastofnun segir ekkert benda til þess að rússneskri fjölskyldu sem var á dögunum vísað úr landi fái ekki vandaða og efnislega málsmeðferð í Króatíu. Hagsmunum tveggja vikna gamalla tvíbura hafi ekki verið stefnt í hættu þegar þeir voru sendir úr landi ásamt fjölskyldu þeirra á dögunum. 8. október 2025 16:34
Miður að börn fylgi foreldrum en ekki öfugt Gjörðir íslenskra stjórnvalda gætu leitt til þess að börn verði tekin af foreldrum sínum, sem mögulega bíður fangelsisvist. Fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar segir aumt að stjórnvöld sendi tveggja vikna börn úr landi undir forsæti flokksins. 5. október 2025 20:52
Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Tveggja vikna tvíburum og tveggja ára bróður þeirra var á mánudag vísað frá Íslandi ásamt foreldrum sínum og þau send til Króatíu. Amma þeirra, frændi og frænka hafa haft alþjóðlega vernd hér á landi í nokkur ár en lögfræðingur fjölskyldunnar segir Útlendingastofnun hafa neitað að upplýsa króatísk stjórnvöld um mögulega fjölskyldusameiningu. 1. október 2025 21:38
Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Mikillar gremju gætir innan þingflokks Samfylkingarinnar vegna umdeildrar brottvísunar á tveggja vikna tvíburasystrum í vikunni. Þingmaður flokksins veltir því fyrir sér hvort útlendingalögin á Íslandi séu nógu mannúðleg. 4. október 2025 19:08
Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Innlent
Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Innlent