Það er hægt að snúa við verri stöðu en er í Reykjavík í dag Róbert Ragnarsson skrifar 27. janúar 2026 07:30 Það er hægt að ná árangri í fjármálum borgarinnar, bæta þjónustuna og lækka skatta. Ég veit það, því ég hef leitt hóp sem hefur gert það. Til að ná árangri þurfa þrír þættir að fara saman: þekking á rekstri, hæfni til að leiða fólk saman og seigla til að fylgja aðgerðum eftir. Á þessum eiginleikum vil ég snúa við stöðu borgarinnar með sambærilegum hætti og ég hef áður gert. Bág staða Reykjavíkur svipar til Grindavíkur árið 2010 Ég tók við sem bæjarstjóri Grindavíkurbæjar árið 2010. Kjörtímabilið á undan einkenndist af meirihlutaslitum og tíðum bæjarstjóraskiptum. Rekstur bæjarsjóðs var ekki sjálfbær og traust til bæjarstjórnar var lítið. Staðan var ekki ósvipuð þeirri sem Reykjavík stendur frammi fyrir í dag. Í bæjarstjórn kom öflugur hópur fólks með raunverulegan vilja til breytinga. Við lögðum strax mikla vinnu í að ná samstöðu um sameiginlega sýn og skýr markmið fyrir Grindavíkurbæ. Markið var sett hátt. Grindavíkurbær yrði fjárhagslega sterkasta sveitarfélag landsins. Það markmið náðist. Fyrir árangurinn hlaut Grindavíkurbær viðurkenningar Arion banka og Vísbendingar árin 2013 og 2014. Lægri skuldir og skattar með markvissum aðgerðum Lykillinn var skýr aðgerðaáætlun. Sett var heildstæð fjármálastefna með markmiðum fyrir hvert fjárhagsár og hvern málaflokk. Bæjarstjórn samþykkti eigin fjármálareglur árið 2010, löngu áður en Reykjavíkurborg gerði slíkt hið sama árið 2022. Gripið var til fjölbreyttra hagræðingaraðgerða, án uppsagna vegna erfðis atvinnuástands eftir Hrunið. Skólar voru sameinaðir, samrekstur aukinn, verkefnum útvistað og stjórnkerfið einfaldað með fækkun nefnda og stjórnenda. Áhersla var lögð á að verja grunnþjónustuna. Hagræðing átti sér stað í umsýslu, stoðþjónustu og stjórnun, en þjónusta við íbúa var óskert. Ég leiddi kraftmikinn hóp kjörinna fulltrúa með það skýra markmið að fjölga íbúum og styðja við atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu. Við byggðum upp virkt samtal við fyrirtæki í bænum og studdum breytingar á hafnarsvæðinu og í Svartsengi til að skapa tækifæri til vaxtar í orkuvinnslu, ferðaþjónustu og sjávarútvegi. Þessar aðgerðir skiluðu umtalsverðum tekjum. Eignir utan grunnþjónustu voru seldar, þrátt fyrir mótmæli, meðal annars Félagsheimilið Festi. Í kjölfarið opnaði þar hótel og bæjarbúar fengu betri samkomusal í íþróttamiðstöðinni. Árangurinn lét ekki á sér standa. Rekstrarafgangur náðist strax árið 2012. Útsvar var lækkað 2013 og aftur 2014, niður fyrir 14%, en aðeins 9 sveitarfélög lögðu á lægra útsvar. Með ábyrgum rekstri var hægt að lækka skatta og styrkja þjónustu. Það er nákvæmlega þetta sem þarf að leggja ofur áherslu á fyrir Reykvíkinga í kjölfar næstu kosninga. Ég hef gert þetta áður, og ætla að gera það aftur í Reykjavík. Höfundur er stjórnmálafræðingur Msc. og frambjóðandi í 1. sæti í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Róbert Ragnarsson Viðreisn Grindavík Reykjavík Borgarstjórn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar