Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Jón Þór Stefánsson skrifar 24. janúar 2026 07:02 Landsréttur staðfesti ákvörðun héraðsdóms um að maðurinn skyldi sæta gæsluvarðhaldi. Vísir/Hanna Maður sem er grunaður um að ráðast inn á heimili og stinga sofandi húsráðanda virðist hafa passað sérstaklega vel upp á að vera algjörlega svartklæddur þegar meint árás var framin. Hann klæddist svörtum sokkum yfir skó sína, var með svarta lambhúshettu, og með stunguvopn vafið inn í svartan sokk.
Árásarmaðurinn og sá sem varð fyrir árásinni deila dóttur, en sá síðarnefndi komst ekki að því hver hefði verið að verki fyrr en morguninn eftir umrædda atburði. Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði sem birtur hefur verið á vef Landsréttar. Umræddir atburðir áttu sér stað um miðjan október síðastliðinn. Lögregla rannsakar málið sem tilraun til manndráps eða stórfellda líkamsárás. Komu auga á svartklæddan mann á leiðinni Lögreglu barst tilkynning um málið nóttina sem atburðirnir áttu sér stað. Henni var greint frá því að árásarmaðurinn hefði brotist inn á heimili manns og ráðist á hann með hnífi á meðan hann svaf í rúmi sínu. Húsráðandanum hafi þó tekist að reka árásarmanninn út, en tók fram að töluvert blóð væri á vettvangi. Hann tók fram að árásarmaðurinn hefði verið allur svartklæddur með eitthvað svart hulið yfir andlitið á sér. Þegar lögregluþjónar voru á leið á vettvang komu þeir auga á mann sem passaði við umrædda lýsingu. Við leit á honum fannst hnífur og leikfangabyssa. Þá var hann, líkt og áður segir, í svörtum sokkum yfir skóna, með svarta lambhúshettu, og með stunguvopn vafið inn í svartan sokk en á enda vopnsins var blóðugur pappír. Á fingrum honum mátti jafnframt sjá þornað blóð. Þar að auki fundust meint fíkniefni í fórum mannsins, falin í tveimur tyggjópökkum. Maðurinn neitaði alfarið að svara spurningum lögreglu vegna málsins hádegið eftir. Ekki upp á kant við neinn Húsráðandinn var fluttur á bráðamóttökuna í Fossvogi, en hann var með sjáanlega stunguáverka á öxl, og andliti. Þá var hann ansi blóðugur, meðal annars um magann. Rannsóknarlögreglumaður ræddi við manninn á bráðamóttökunni. Hann sagði að þegar atburðirnir áttu sér stað hafi hann verið nýkomin úr vinnu og farið að sofa nakinn. Um nóttina hafi hann rumskað við eitthvað bank í húsinu, en ekkert orðið frekar var við það og sofnað aftur. Stuttu síðar hafi hann svo vaknað við það að sæng hans hafi verið tekin af honum og ráðist á sig. Hann hafi orðið var við ítrekuð högg í öxl og höfuð. Hann sá þó aldrei andlit árásarmannsins, og taldi að hann hefði hulið andlit sitt að einhverju leiti. Maðurinn sagði við lögreglu að hann væri ekki upp á kant við neinn og skildi ekki afhverju verið væri að ráðast á hann. Hann sagðist hafa gleymt að læsa útidyrahurð sinni. Blóð hafi verið að sjá þar sem skellt er í lás en hann sagðist hafa læst hurðinni eftir að honum hafi tekist að koma árásarmanninum út úr íbúðinni. Árásarmaðurinn barnsfaðir dóttur hans Lögreglan tók aðra skýrslu af honum um hádegisleytið morguninn eftir. Þá bar lögreglan undir hann nafn grunaðs árásarmanns, og greindi maðurinn þá frá því að hann væri barnsfaðir dóttur hans. Hann sagðist ekki hafa áttað sig á því um nóttina. Árásarmaðurinn var úrskurðaður í nokkurra daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur, og staðfesti Landsréttur þá ákvörðun. Lögreglan taldi mikilvægt að svo yrði svo árásarmaðurinn gæti ekki torveldað rannsókn málsins, „svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum eða hafa áhrif á samseka og eftir atvikum vitni.“ Fram kom að á þeim tímapunkti ætti eftir að taka skýrslur af dótturinni sem mennirnir deila og barnsmóðurinni. Í úrskurðinum er tekið fram að brotið sem árásarmaðurinn sé grunaður um geti varðað allt að sextán ára fangelsi.
Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps Fréttir Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Innlent Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Innlent Reiðin magnast í Venesúela Erlent Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Innlent Með kylfur og mikið magn vímuefna Innlent Fleiri fréttir Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Lýsa yfir þungum áhyggjum af notkun gervigreindar við tónlistarsköpun Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Með kylfur og mikið magn vímuefna Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Fósturfaðirinn áfram í gæslu Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ Sjá meira