Innlent

Kærði mót­mælendurna til að fæla aðra frá

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf.
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf. Vísir/Vilhelm

Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segir rök sín fyrir að ákæra tvo aðgerðarsinna fyrir húsbrot í kjölfar mótmæla þeirra á hvalveiðibátum vera til að fæla aðra frá því að gera slíkt.

Aðalmeðferð fer fram í dag í máli Anahitu Sahara og Elissu Philps sem dvöldu í hvalveiðibátunum Hvalur 8 og 9 í 33 klukkustundir 4. til 5.  september 2023.

Kristján bar vitni fyrir dómi og sagðist hafa kært konurnar tvær til lögreglu daginn eftir mótmælin. Aðgerðirnar voru hins vegar alfarið í höndum lögrelgu á vettvangi.

„Þetta var um morgun og löggan er komin á staðinn og við létum hana um þetta,“ segir Kristján.

Fælingarmátturinn

Ekkert tjón varð af mótmælunum Kristján ákvað að kæra til að búa til ákveðinn fælingarmátt.

„Fælingarmáttur að vera ekki að þvælast um borð. Þetta er stórhættulegt að fara þarna upp ef þú kannt það ekki. Ef þér skrikar fótur ertu dauð eða lömuð fyrir lífstíð, þetta er ekkert grín.“

Hann staðfestir einnig að engar skemmdir voru á skipinu eftir mótmælin og þá stóð ekki til að hefja veiðar umrædda daga vegna veðurs.

„Ég veit ekki hvort þú býrð á Íslandi en það er mjög áhrifaríkt veðrið,“ segir Kristján.

„Veðurspáin var þannig að það hafði engan tilgang, hvorugan daginn.“

Skýrt merki á tveimur tungumálum

Kristján segir að á þessum tímapunkti hafi verið auðvelt fyrir þær að komast um borð í skipið án þess að nota landganginn. Á landganginum hafi verið skilti þar sem á bæði íslensku og ensku stóð að óviðkomandi væri bannaður aðgangur.

Hann gaf lítið fyrir spurningar verjanda kvennanna og þegar hún spurði hvort hann muni hvað kom fram í kærunni benti hann verjandanum á að hún væri sjálf með skjalið og gæti lesið það sjálf.

„Það eru tvö og hálft ár síðan, það er ekki hægt að muna allan þennan djölful,“ sagði Kristján.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×