Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Agnar Már Másson skrifar 18. janúar 2026 20:20 Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands. Vísir/EPA Talsmaður Keirs Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segir að forsætisráðherrann hafi talað við Donald Trump Bandaríkjaforseta í síma í dag. Ráðherran hafi sagt að það væri „rangt“ að leggja tolla á bandamenn sína fyrir það eitt að reyna að tryggja öryggi á norðurslóðum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti boðaði í gær tíu prósenta tolla á átta aðildarríki Atlantshafsbandalagsins (Nató) sem studdu ekki innlimunaráform Bandaríkjastjórnar um Grænland, sem heyrir undir dönsku krúnuna. Leiðtogar þessara átta landa – Bretlands, Þýskalands, Hollands, Frakklands og Norðurlanda að Íslandi undanskildu – brugðust ókvæða við en öll eiga löndin það sameiginlegt að hafa sent hermenn til Grænlands. Þýskir hermenn eru nú snúnir heim þar sem verkefni þeirra er lokið, að sögn þýska hersins. Trump hefur ekkert tjáð sig opinberlega um boðaða tolla frá því að hann tilkynnti um þá í gær en nú segist breski ráðherrann hafa rætt við Bandaríkjamanninn. „Forsætisráðherrann ítrekaði afstöðu sína til Grænlands. Hann sagði að öryggi á norðurslóðum væri forgangsmál fyrir öll bandalagsríki NATO til að vernda hagsmuni Evrópu og Atlantshafsbandalagsins,“ segir talsmaður Starmer, samkvæmt umfjöllun BBC. Þótt útfærsla tollanna liggi ekki fyrir eiga þeir að óbreyttu að hækka í 25 prósent hinn 1. júní ef ekkert breytist í afstöðu ríkjanna. „Hann [Starmer] sagði einnig að það væri rangt að beita bandamenn tollum fyrir að vinna að sameiginlegu öryggi bandalagsríkja NATO,“ bætti talsmaðurinn við og nefndi að Starmer hafi einnig rætt við Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, í dag. Þar sem Evrópusambandsríki eru í tollabandalagi mun hann líklega þurfa að leggja toll á ESB eins og það leggur ef hann hyggst í raun leggja á þessa Grænlandstolla.
Donald Trump Bretland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Bandaríkin Grænland Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Fleiri fréttir Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Sjá meira