Borgin beri ábyrgð sem eigandi Lillý Valgerður Pétursdóttir og Eiður Þór Árnason skrifa 13. janúar 2026 19:58 Birgir Finnsson, starfandi slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir ýmsar ástæður geta verið fyrir því að húsið var orðið alelda þegar slökkvilið kom á staðinn. Sýn Borgin firrti sig allri ábyrgð á skemmu sem gjöreyðilagðist í bruna í Gufunesi þegar hún var leigð út. Leigutaka átti að vera slæmt ástand skemmunnar ljóst en þar voru geymdir sögulega verðmætir hlutir. Slökkviliðsstjóri segir borgina bera ábyrgð en brunavarnir séu samspil eiganda og leigutaka.
Rannsókn stendur yfir á upptökum brunans. Strax í gærkvöldi var ljóst að um altjón var að ræða. Kvikmyndaframleiðslufyrirtækið True North hafði skemmuna á leigu en Reykjavíkurborg er eigandi hennar. Fyrirtækið nýtti skemmuna undir gamla leikmuni. Slökkvilið slökkti í síðustu glæðunum rétt fyrir hádegi í dag en eftir það kom tæknideild lögreglunnar á svæðið og byrjaði að rannsaka upptök eldsins. Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Vísir/Grétar „Svona brunarannsóknir geta verið svolítið umfangsmiklar og það er bæði verið að taka sýni og ljósmyndir. Þetta er bara hefðbundin vettvangsrannsókn hjá okkur. Það eru notaðar myndavélar, drónar og þrívíddarskannar til að reyna að varpa sem bestu ljósi á aðstæður,“ segir Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Það sé erfitt að segja til um það hvenær von sé á niðurstöðu úr rannsókninni og hún muni taka einhverjar vikur. Klippa: Borgin firrir sig ábyrgð Skoða hvort kviknað hafi út frá rafmagni sem athugasemd var gerð við Grétar segir allt til skoðunar, þar á meðal hvort kviknað hafi í út frá rafmagni. Athugasemdir voru gerðar við ástand hússins árið 2024 og þá sér í lagi rafmagnið. Slökkviliðið skoðaði húsið sama ár og þá var brunavörnum ábótavant en eigendur voru látnir vita af því. Engin eftirfylgni var þó af hálfu slökkviliðsins þar sem um var að ræða þannig húsnæði. Guðjón Davíðsson, stjórnarformaður True North, sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar um mikið tjón að ræða. Fyrirtækið hafi vitað um ástand hússins og það hafi verið í ágætis standi. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið í dag. Í leigusamningi Reykjavíkurborgar og True North um skemmuna, sem undirritaður var þann 14. mars árið 2024, firrir borgin sig ábyrgð og setur fyrirvara um að leigutaka sé kunnugt um mjög slæmt ástand hússins. Þá segir í samningnum að True North annist allar tryggingar á eignum sínum í hinu leigða húsnæði, til að mynda húseigendatryggingu. Rannsókn stendur yfir á upptökum eldsins.Vísir/vilhelm Reglugerðin sé skýr Birgir Finnsson, starfandi slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir ýmsar ástæður geta verið fyrir því að húsið var orðið alelda þegar slökkvilið kom á staðinn upp úr klukkan 17 í gær. Bæði skipti brunavarnir byggingarinnar máli og eldsmaturinn þar inni. „Til hvers húsið var notað og hvað var inni í því og í þriðja lagi gæti auðvitað verið að eldur hafi verið búinn að krauma í einhvern tíma áður en einhver sér hann. Að það hafi orðið eitthvað til þess að hurð hafi gefið sig eða gluggi eða eitthvað slíkt og reykur komið út en hann búinn að krauma inni í byggingunni í einhvern tíma áður en fólk verður vart við hann. Húsnæðið er alelda þegar við komum á staðinn.“ Slökkvistarf stóð fram á kvöld. Vísir/vilhelm Reykjavíkurborg á umrædda byggingu og slökkvilið gaf út árið 2024 að brunavörnum væri þar ábótavant, líkt og áður segir. En hvort er það leigusali eða leigutaki sem ber ábyrgð þegar kemur að brunavörnum í slíku húsnæði? „Það er reglugerð um eldvarnir í húsum þar sem kemur fram að eigandi er ábyrgur fyrir brunavörnum en síðan er þetta auðvitað samspil eigenda og þess sem tekur húsið á leigu. Til hvers á að nota það og hvernig. Þannig að Reykjavíkurborg ber ábyrgð sem eigandi og samningur á að vera á þeim grundvelli en svo þarf auðvitað leigutaki að nota húsið. Starfsemin þarf að vera í takti við það sem hann leigir húsið til,“ segir Birgir. Höfðu ekki áhyggjur af fólki Er eðlilegt að það sé verið að leigja húsið út í svona slæmu ásigkomulagi án þess að huga betur að brunavörnum? „Þetta er geymsluhúsnæði og það er leigt sem slíkt. En auðvitað þarf að huga að því og við gerum þarna úttekt 2024 þar sem við gerum meðal annars athugasemdir við rafmagn. En þá var húsnæðið tómt og í sjálfu sér ekki vitað í hvað það ætti að nota. Við höfum síðan ekki frekari afskipti af því sökum þess að þetta er geymsluhúsnæði í mjög lélegu ásigkomulagi og höfum ekki í raun og veru frekari áhyggjur af því að þarna sé eitthvað fólk í hættu eða eitthvað slíkt,“ segir Birgir Finnsson, starfandi slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu.
Bruni í skemmu í Gufunesi Reykjavík Slökkvilið Kvikmyndagerð á Íslandi Tengdar fréttir „Vorum bara með húsið í því ástandi sem það var“ Stjórnarformaður Truenorth segir forsvarsmenn fyrirtækisins ekki sérstaklega hafa haft til skoðunar ástand skemmunnar í Gufunesi sem brann í gær og hýsti meðal annars gamla leikmuni fyrirtækisins. Ekki sé búið að verðmeta tjónið enn en það sé í raun óbætanlegt. 13. janúar 2026 12:46 Borgin firrti sig allri ábyrgð á skemmunni Samkvæmt leigusamningi Reykjavíkurborgar og Truenorth um skemmuna í Gufunesi, sem brann í gær, ber borgin enga ábyrgð á tjóni á eignum Truenorth vegna brunans. Forsvarsmenn félagsins hafa sagt ómetanlega sögulega muni hafa verið í skemmunni þegar hún brann en hún var notuð undir gamla leikmuni. 13. janúar 2026 11:10 Vöktuðu rústirnar fram á nótt og fylgjast áfram með Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var með vakt við skemmuna sem brann í Gufunesi til klukkan rúmlega eitt í nótt. 13. janúar 2026 07:29 Mest lesið Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fleiri fréttir Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Sjá meira
„Vorum bara með húsið í því ástandi sem það var“ Stjórnarformaður Truenorth segir forsvarsmenn fyrirtækisins ekki sérstaklega hafa haft til skoðunar ástand skemmunnar í Gufunesi sem brann í gær og hýsti meðal annars gamla leikmuni fyrirtækisins. Ekki sé búið að verðmeta tjónið enn en það sé í raun óbætanlegt. 13. janúar 2026 12:46
Borgin firrti sig allri ábyrgð á skemmunni Samkvæmt leigusamningi Reykjavíkurborgar og Truenorth um skemmuna í Gufunesi, sem brann í gær, ber borgin enga ábyrgð á tjóni á eignum Truenorth vegna brunans. Forsvarsmenn félagsins hafa sagt ómetanlega sögulega muni hafa verið í skemmunni þegar hún brann en hún var notuð undir gamla leikmuni. 13. janúar 2026 11:10
Vöktuðu rústirnar fram á nótt og fylgjast áfram með Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var með vakt við skemmuna sem brann í Gufunesi til klukkan rúmlega eitt í nótt. 13. janúar 2026 07:29