Bíllinn þremur milljónum dýrari Bjarki Sigurðsson skrifar 8. janúar 2026 13:37 Vörugjöld rafbíla voru felld niður. Vísir/Vilhelm Hækkun vörugjalda, sem tók gildi um áramótin, er farin að láta á sér kræla í verði hjá bílaumboðum. Afnám vörugjalda á rafmagnsbíla hefur ekki mikil áhrif eftir lækkun rafbílastyrks og dæmi eru um að ódýrari rafbílar hækki í verði eftir breytinguna.
Um áramótin hækkuðu vörugjöld á bíla sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti og hækka gjöldin á fólksbíla úr fimm prósentum í fimmtán. Fyrstu tíu mánuði síðasta árs nýskráðu einstaklingar að meðaltali 468 bíla á mánuði. Í byrjun október var tilkynnt að vörugjöldin myndu hækka og fjölgaði nýskráningum þá gríðarlega. Í nóvember voru þær 970 og í desember 1030. Ef litið er yfir allt árið fjölgaði nýskráningum um 40 prósent milli ára, en þær voru samt sem áður færri en 2022 og 2023. Hlutdeild bensín- og dísilbíla hefur aldrei verið lægri. Þrjár til sex milljónir Sigurður Kr. Björnsson, markaðsstjóri Ísbands, segir verðskrár einhverra umboða enn vera að taka breytingum. Ljóst er að verð nýrra bíla hafi hækkað umtalsvert. „Við erum að sjá á þeim verðlistum sem eru komnir, og á okkar bílum, að þetta geta verið þrjár til sex milljónir,“ segir Sigurður. Biðástand um tíma Hann sé þó bjartsýnn fyrir nýju ári. Það þýði lítið að vera svartsýnn bílasali. „Það hefur verið ágætis traffík til okkar. Við erum bjartsýnir og blásum til sýningar næstu helgi,“ segir Sigurður. „Fólk var í smá bið vegna þess að frumvarpið hefði getað tekið breytingum við meðferð þingsins. Þá myndast smá biðástand hjá kaupendum.“ Lækka gjöld og styrk Á sama tíma voru vörugjöld á rafmagnsbíla afnumin. Hins vegar lækkaði styrkur Loftslags- og orkusjóðs til kaupa á nýjum rafmagnsbílum úr 900 þúsund í 500 þúsund. „Það kannski jafnast út á sumum bílum, það fer eftir upphæðinni,“ segir Sigurður. En ódýrustu bílarnir gætu orðið dýrari? „Já, þeir gætu hafa hækkað í verði. En við erum ekki búin að sjá yfirlit yfir allan markaðinn þannig það er kannski of snemmt að segja til um það,“ segir Sigurður.
Bílar Vistvænir bílar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Samgöngur Neytendur Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Sjá meira