Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Árni Sæberg skrifar 19. desember 2025 15:18 Birkir er varaborgarfulltrú Samfylkingarinnar. Birkir Ingibjartsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar og arkitekt, sækist eftir þriðja til fjórða sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum.
Frá þessu greinir Birkir í færslu á Facebook. Hann sóttist eftir fimmta sæti á lista Samfylkingarinnar í síðustur kosningum og endaði í því áttunda. „Það er ekkert launungarmál að það er áhugi minn á þróun og vexti borgarinnar sem dregur mig að vettvangi stjórnmálanna. Nú sem endranær eru stór verkefni til skoðunar og vinnslu sem munu marka með skýrum hætti hvernig borgarsamfélag Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins alls mun þróast næstu tvo til þrjá áratugina. Samfylkingin í Reykjavík hefur verið leiðandi afl í því samtali síðustu 10-15 árin og vil ég eiga þátt í því að svo verði áfram,“ segir í færslunni. Borgarlínan og önnur verkefni Samgöngusáttmálans, almenn gæði byggðar og nærumhverfisin, bættir göngu- og hjólastígar, Sundabraut, næstu skref í uppbyggingu Vatnsmýrarinnar, húsnæðisuppbygging með félagslegu bakbeini og öflugir sjálfstæðir borgarhlutar séu meðal þeirra atriða sem komi þar strax upp í hugann og séu allt mál þar sem hann telji að hans faglega reynsla og þekking geti hjálpað til við að laða fram þau tækifæri sem séu staðar. „Ég hef síðustu fjögur ár verið varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar samhliða því að vera sjálfstætt starfandi arkitekt. Það hefur verið dýrmæt reynsla að fá innsýn inn í gangverk borgarkerfisins frá sjónarhóli stjórnmálanna en nú óska ég eftir stuðningi ykkar til að fá tækifæri til að verða virkari þátttakandi í að auðvelda hið daglega líf borgarbúa og móta framtíð Reykjavíkur.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Reykjavík Samfylkingin Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira