Viðskipti innlent

Bein út­sending: Skatt­spor ferða­þjónustunnar

Atli Ísleifsson skrifar
Ferðamenn fylgjast með Strokki gjósa í Haukadal.
Ferðamenn fylgjast með Strokki gjósa í Haukadal. Vísir/Vilhelm

Skattspor ferðaþjónustunnar fyrir árið 2024 verður kynnt á morgunfundi Samtaka ferðaþjónstunnar og Samtaka atvinnulífsins sem hefst klukkan níu.

Fundurinn fer fram í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll en hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan. 

Í tilkynningu segir að flutt verði ávörp ásamt því að skýrsla sem Reykjavík Economics hefur unnið fyrir SAF verður kynnt. Þá fara fram umræður um skattspor ferðaþjónustunnar og hvert raunverulegt framlag greinarinnar er til samfélagsins.

Fram koma:

  • Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
  • Magnús Á. Skúlason, framkvæmdastjóri Reykjavík Economics
  • Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA
  • Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds – Bílaleigu Akureyrar
  • Þóra Eggertsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála Icelandia

Pétur Óskarsson, formaður SAF, stýrir fundinum og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, leiðir umræður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×