Innlent

Al­var­legt slys á Suður­lands­braut

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Litlar upplýsingar er að fá um slysið.
Litlar upplýsingar er að fá um slysið. Vísir/Einar

Alvarlegt slys varð á Suðurlandsbraut vestan við Reykjaveg á ellefta tímanum í morgun. Sjúkrabíll var sendur á svæðið en litlar upplýsingar er að fá frá viðbragðsaðilum.

Nokkrum lögreglumótorhjólum hefur verið stillt upp með blikkandi ljós til að loka fyrir umferð um Suðurlandsbraut í vesturátt. Umferð er beint norður Reykjaveg.

Lögregla og Rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka vettvanginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×