Innlent

Harmar mis­tök og tekur ann­markana mjög al­var­lega

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigríður Björk Guðjónsdóttir var skipuð ríkislögreglustjóri í september 2020. Þar áður var hún lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir var skipuð ríkislögreglustjóri í september 2020. Þar áður var hún lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm

Ríkislögreglustjóri segist hafa gert mistök að bjóða ekki út verkefni sem Intra sinnti. Embættið taki mjög alvarlega þá annmarka sem hafa komið fram um kaup stofnunarinnar á ráðgjöf og þjónustu utanaðkomandi sérfræðinga eða ráðgjafa og greiðslur til verktaka. Unnið sé að ítarlegum verklagsreglum um innkaup og samningagerð til að tryggja gagnsæi og samræmi við opinber innkaup.

Þetta kemur fram í svari embættis ríkislögreglustjóra til dómsmálaráðherra í gær sem hefur verið birt á vef ríkislögreglustjóra.

Þar segist ríkislögreglustjóri vilja gera grein fyrir samstarfinu við Intra ráðgjöf í eigu Þórunnar Óðinsdóttur á árunum 2020 til 2025.

„Embættið harmar þau mistök sem urðu í viðskiptum við félagið og hefur dregið af þeim mikilvægan lærdóm,“ segir í svari embættis ríkislögreglustjóra.

Intra hafi upphaflega verið fengið til að vinna tímabundið með embætti ríkislögreglustjóra árið 2020.

„Góð reynsla var af fyrri störfum félagsins hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þar sem Lean-aðferðafræðinni var beitt til að bæta ferla og ná fram árangursríkum umbótum. Félagið hafði jafnframt þekkingu og reynslu af störfum lögreglu og skipulagi hennar,“ segir í svarinu.

„Í upphafi var félagið fengið til ráðgjafar og verkefnastýringar í tengslum við umfangsmiklar breytingar á stjórnskipulagi embættis ríkislögreglustjóra, auk þess sem félagið hafði umsjón með þjálfun stjórnenda í verkefnastjórnun. Fyrstu verkefnin sneru að mestu leyti að þjálfun starfsmanna og verkstýringu stærri umbóta- og stefnuverkefna. Frá árinu 2023 var félaginu einnig falið að stýra flutningum starfsstöðva í kjölfar þess að mygla greindist á tveimur starfsstöðvum embættisins. Áætlað var að verkefnin yrðu til skamms tíma en þau hafa verið umfangsmeiri en búist var við. Embættið er enn í bráðabirgðahúsnæði og starfsemin mjög dreifð.“

Ekki hafi verið farið í útboð eða verðfyrirspurnir vegna breytinga á stjórnskipulagi embættisins enda ekki áform um að fara í samstarf til lengri tíma. Samhliða breytingum á stjórnskipulagi hafi verið farið í nokkur umbóta- og stefnuverkefni.

„LEAN-aðferðafræðin reyndist vel til að halda utan um stór og flókin verkefni sem embættinu voru falin. Í ljósi þess hvert umfang og eðli samstarfsins varð voru það mistök að bjóða verkefnin ekki út eða skoða ráðningu sérstaks starfsmanns til að sinna þessum verkefnum. Hraði, umfang og fjöldi þeirra verkefna sem embættið sinnir er mikill og við það bættust óvæntir flutningar á tveimur starfsstöðvum embættisins. Öll verkefni sem unnin hafa verið af félaginu fyrir embættið hafa verið sýnileg, unnin samkvæmt tímaskýrslum sem skilað var mánaðarlega, auk þess sem farið hefur verið yfir verkefnin í framkvæmdastjórn eða með eigendum verkefnanna. Reikningarnir eru opnir og aðgengilegir.“

Að meginstefnu séu innkaup hjá embættinu gerð í gegnum útboð eða verðfyrirspurnir þar sem byggt sé á umfangi hvers verkefnis.

„Ljóst er að læra þarf af þessum mistökum, bæta verklag, eftirlit og yfirsýn með innkaupum og er sú vinna þegar hafin.“

Embættið segir greiðslur til Intra á ársgrundvelli hafa verið frá rúmum átta milljónum króna upp í rúmlega 30 milljónir króna yfir fimm ára tímabilið. Heildarviðskiptin frá 2020 til og með júní 2025 nemi rúmlega 130 milljónum króna án virðisaukaskatts. Embættið nefnir að heildarútgjöld embættisins yfir sama tíma séu tæplega 33 milljarðar króna.

„Þau verkefni sem fjölmiðlar hafa lagt áherslu á og snúa að vali á húsbúnaði og húsnæðisbreytingum á árunum 2020 til 2025 nema 1,28% af heildarviðskiptum embættisins við félagið.“

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×