Óljóst hvort veðhafar fái nokkuð Samúel Karl Ólason skrifar 6. október 2025 17:48 Einar Örn Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Play, mætir til fundar með kröfuhöfum á Hilton Nordica í dag. Vísir/Anton Brink Frá því starfsemi Fly Play hf. var stöðvuð í síðustu viku hafa skuldabréfaeigendur unnið sleitulaust að því að reyna að takmarka tjón sitt. Þeir eru meðal stærstu hluthafa þrotabús félagsins en óljóst hvort þeir muni á endanum fá nokkuð upp í kröfur sínar.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu frá skuldabréfaeigendum Fly Play Hf. Þar segir að um sé að ræða fjölbreyttan hóp fjárfesta sem hafi þann 26. ágúst lagt til fjármögnun í formi verðtryggðrar breytanlegrar skuldabréfaútgáfu. Tilgangur þess var að bæta lausafjárstöðu félagsins á meðan forvarsmenn þess gerðu umfangsmiklar breytingar á viðskiptalíkani Play. Sjá einnig: Risagjalddagi vegna losunarheimilda daginn eftir gjaldþrot Í yfirlýsingunni segir að tilkynningin um rekstrarstöðvun Play síðasta mánudag hafi verið mikið reiðarslag fyrir alla sem tengdust félaginu. Í kjölfarið voru áðurnefnd skuldabréf gjaldfelld. „Síðan þá hafa skuldabréfaeigendur unnið sleitulaust að því að reyna að lágmarka tjón og hámarka virði þeirra eigna sem gengið var að í samræmi við lög og reglur,“ segir í yfirlýsingunni. Þar segir að þetta verkefni sé bæði erfitt og flókið og alfarið sé óljóst hvort það muni á endanum skila nokkru til veðhafa. Áhersla er lögð á að tryggja sem besta niðurstöðu fyrir alla hagsmunaaðila. Því eru skuldabréfaeigendur sagðir ætla að eiga í góðu samstarfi við skiptastjóra, enda sé hagur allra að hámarka virði eigna búsins. Þá segir einnig að rík ástæða sé til að taka fram að fyrrverandi dótturfélag Play á Möltu sé ekki með gilda flugvélaleigusamninga.
Play Gjaldþrot Play Tengdar fréttir Play skuldi Isavia hálfan milljarð króna Hið gjaldþrota flugfélag Play er sagt skulda Isavia um hálfan milljarð króna. Þrátt fyrir það fengu kínverskir eigendur síðustu Play-vélarinnar á Keflavíkurflugvelli leyfi til að fljúga með vélina úr landi í dag. 5. október 2025 20:01 Síðasti fuglinn floginn Síðasta flugvélin merkt flugfélaginu Play er farin úr landi og stefnir nú til Noregs. Vélin er í eigu kínversks félags og átti hún að standa á vellinum þar til útistandandi skuldir Play yrðu greiddar samkvæmt nýrri reglugerð innviðaráðherra. Skuldirnar hafa enn ekki verið greiddar. 5. október 2025 14:15 Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira
Play skuldi Isavia hálfan milljarð króna Hið gjaldþrota flugfélag Play er sagt skulda Isavia um hálfan milljarð króna. Þrátt fyrir það fengu kínverskir eigendur síðustu Play-vélarinnar á Keflavíkurflugvelli leyfi til að fljúga með vélina úr landi í dag. 5. október 2025 20:01
Síðasti fuglinn floginn Síðasta flugvélin merkt flugfélaginu Play er farin úr landi og stefnir nú til Noregs. Vélin er í eigu kínversks félags og átti hún að standa á vellinum þar til útistandandi skuldir Play yrðu greiddar samkvæmt nýrri reglugerð innviðaráðherra. Skuldirnar hafa enn ekki verið greiddar. 5. október 2025 14:15