Innlent

Bein út­sending: Loftslagsdagurinn

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Dagurinn fer fram í Hörpu.
Dagurinn fer fram í Hörpu. Vísir/Vilhelm

Loftslagsdagurinn hefurr fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur umræðu um loftslagsmál á Íslandi og tengir saman almenning, stjórnvöld, atvinnulíf og vísindasamfélagið. Hann fer fram í dag í Hörpu og er hægt að fylgjast með honum í beinu streymi neðst í fréttinni.

Þema dagsins í ár er: Framtíð í jafnvægi – Hvernig finnum við jafnvægi milli náttúru og aðgerða?

Dagskráin samanstendur af fjölbreyttum umræðum þar sem sérfræðingar og hagsmunaaðilar takast á við lykilspurningar framtíðarinnar.

Opnun

Gestur Pétursson, forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra

Af náttúrusölu og neysluskiptum – Kristín Helga Gunnarsdóttir, rithöfundur, leiðsögumaður og stjórnarmaður í Landvernd

Hvernig miðar okkur?

Losun á Íslandi – Góðar og slæmar fréttir? – Birgir Urbancic Ásgeirsson, sérfræðingur í teymi losunarbókhalds hjá Umhverfis- og orkustofnun

Hvernig lítur samstíga vegferð út?

Er það nauðsynlegt? Samspil loftslagsaðgerða og skipulagsvalds – Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur í umhverfis- og loftlagsmálum hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Tvær áskoranir, ein lausn – Loftslagsmarkmið og líffræðileg fjölbreytni – Bryndís Marteinsdóttir, sviðsstjóri sjálfbærrar landnýtingar hjá Landi og skógi

Þarf öll þessi klósett? Ferðamennska og forgangsröðun aðgerða í náttúruvernd – Katrín Karlsdóttir, verkefnastjóri á þróunarsviði Náttúruverndarstofnunar

Samstíga í loftslagsaðgerðir – Nýjar lausnir í nýjum heimi – Karen Björk Eyþórsdóttir, verkefnastjóri hjá Transition Labs

Er spenna í orkuskiptum?

Spáð í orkuspilin – Hvar stöndum við og hvert stefnum við gagnvart markmiðum 2030? – Jón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson, teymisstjóri í teymi orkuskipta og orkunýtni hjá Umhverfis- og orkustofnun

Eru orkuskipti bara rugl? Staða orkuskipta á Íslandi – Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðsstjóri á sviði orkuskipta og hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun

Rammaáætlun, hvað er það? Áætlun um orkunýtingu og náttúruvernd – Svanfríður Jónasdóttir, formaður 6. áfanga rammaáætlunar

Árangur aðgerða – Eigum við erindi sem erfiði? – Ágústa Steinunn Loftsdóttir, eðlisfræðingur á orkusviði Eflu

Getum við bætt lífsgæði og tekið ábyrgð núna?

Hvað eru lífsgæði? – Nicole Keller, teymisstjóri í teymi losunarbókhalds hjá Umhverfis- og orkustofnun

Getur sálfræði bjargað heiminum? Um félagssálfræði loftslagsbreytinga – Bjarki Grönfeldt, sérfræðingur í samfélagsmálum hjá Landsvirkjun og aðjúnkt við Háskóla Íslands

Hvernig getum við notað hringrásarhagkerfið til þess að efla lífsgæði? – Þorbjörg Sandra Bakke, teymisstjóri í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun




Fleiri fréttir

Sjá meira


×