Innlent

Tóku fyrstu skóflu­stungu að næsta á­fanga mið­bæjarins á Sel­fossi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Fólkið, sem situr í stjórn Félags eldri borgara á Selfossi tók skóflustungurnar í dag af næsta áfanga við uppbyggingu miðbæjarins á Selfossi.
Fólkið, sem situr í stjórn Félags eldri borgara á Selfossi tók skóflustungurnar í dag af næsta áfanga við uppbyggingu miðbæjarins á Selfossi. Aðsend

Stjórn félags eldri borgara tók fyrstu skóflustunguna í dag í næsta áfanga nýja miðbæjarsins á Selfossi en um er að ræða fimm þúsund fermetra uppbyggingu. Sex sögufræg hús úr Reykjavík verða endurbyggð, þar á meðal Syndikatið og Ingólfshvoll.

Um er að ræða sex ný hús við Miðstræti, nýja götu sunnan við núverandi miðbæ, sem þverar Brúarstræti og liggur frá austri til vesturs. Í húsunum verða 27 íbúðir á efri hæðum og verslunar- og þjónusturými á jarðhæð, auk bílakjallara. Þetta er stór áfangi í stækkun nýja miðbæjarins á Selfossi en áætluð verklok eru um mitt ár 2027.

„Við erum afar spennt fyrir þessum áfanga enda er hann fyrsta skrefið í frekari uppbyggingu miðbæjarins á Selfossi,“ segir Leó Árnason, framkvæmdastjóri Landsbyggðar. „Nýi miðbærinn hefur sannað gildi sitt með því að efla mannlíf og menningarstarf í bænum og skapað ný störf. Þetta gefur okkur fullt tilefni til bjartsýni um áframhaldandi uppbyggingu og þau tækifæri sem í henni felast.“

Leó Árnason er einn af aðalmönnunum við uppbyggingu miðbæjarins en Landsbyggð, sem er fasteigna- og þróunarfélag er í eigu Leós og Kristjáns Vilhelmssonar. Hér er Leó á fundi að kynna uppbyggingu miðbæjarins.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Hugmyndafræðin að baki miðbænum á Selfossi er að endurreisa horfin hús úr Íslandssögunni og skapa lifandi vettvang fyrir mannlíf og menningu. Þar má nú finna endurbyggð hús víðs vegar af landinu en í þessum áfanga eru öll húsin ættuð úr miðbæ Reykjavíkur. Húsin voru öll byggð um aldamótin 1900 og mörg þeirra brunnu til kaldra kola í brunanum mikla árið 1915.

Um húsin sem verða endurbyggð við Miðstræti:

● Austurstræti 7

Tvílyft hús sem var reist snemma á 20. öldinni og var í eigu Gunnars Gunnarssonar verslunarmanns. Það brann til kaldra kola í miðbæjarbrunanum mikla árið 1915.

● Austurstræti 9

Þriggja hæða timburhús sem reis við hlið Landsbankans. Verslunin Edinborg var starfrækt þar um skeið. Húsið brann í miðbæjarbrunanum 1915.

● Syndikatið

Reist á mótum Austurstrætis, Pósthússtrætis og Austurvallar rétt eftir 1900. Vöruhús á þremur hæðum, fyrsta stórverslun landsins þar sem Einar Benediktsson skáld hafði tögl og haldir. Húsið brann 1915.

● Ingólfshvoll

Verslunar-, skrifstofu- og íbúðarhús reist 1904, á horni Hafnarstrætis og Pósthússtrætis. Húsið skemmdist mikið í brunanum 1915 en var endurreist. Margs konar starfsemi var í húsinu til ársins 1969 en þá var það rifið.

● Bergstaðastræti 14

Timburhús sem var reist árið 1907 en brann rúmum áratug síðar.

● Völundur

Trésmiðja sem var reist árið 1904 af Sveini M. Sveinssyni á horni Klapparstígs og Skúlagötu. Þar hófst vélvæðing í íslenskum timburiðnaði. Húsið var rifið skömmu fyrir 1990.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×