Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Hjörvar Ólafsson skrifar 18. september 2025 21:04 vísir/Anton FH fór með sigur af hólmi, 36-30, þegar liðið mætti í þriðju umferð Olís-deildar karla í handbolta í Kaplakrika í kvöld. FH-ingar unnu sannfærandi sigur gegn Val í síðustu umferð deildarinnar og héldu áfram frá því sem frá var horfið í þessum leik. Leikmenn FH komu kraftmiklir og vel innstilltir til leiks og voru komnir 5-1 yfir þegar tæplega tíu mínútur voru liðnar af leiknum. Einar Örn Sindrason hefur alið manninn frá unga aldri í Kaplakrika og fann fjölina sína í upphafi þessa leiks. Þá var varnarleikur FH-liðsins grimmur og sóknarleikur Eyjaliðsins á sama tíma stirðbusalegur. Eyjamenn vöknuðu til lífsins um miðjan fyrri hálfeikinn og minnkuðu muninn í eitt mark, 9-8, en Elís Þór Aðalsteinsson var fremstur í broddi fylkingar hjá Eyjaliðinu á þeim góða kafla. Þá smullu FH-ingar aftur í gang og undir lok fyrri hálfleiks fékk Sigtryggur Daði Rúnarsson að líta beint rautt spjald. Í kjölfarið á því misstu leikmenn ÍBV hausinn um stundarsakir og Andri Erlingsson fékk tvær mínútur fyrir að malda í móinn í sókninni sem ÍBV lagði af stað í eftir rauða spjaldið. FH nýtti sér það að vera tveimur leikmönnum fleiri til fullnustu og byggði upp sex marka forskot, 18-12, og heimamenn voru 19-14 yfir þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik. Eyjamenn náðu aldrei að hleypa spennu í þennan leik og sigurinn var aldrei í hættu hjá FH. Þegar upp var staðið vann FH-liðið öruggan sex marka sigur, Jón Þórarinn Þorsteinsson sem varði vel í sigrinum gegn Val hélt uppteknum hætti í kvöld. Jón Þórarinn hóf leikinn á varamannabekknum en kom inná í lok fyrri hálfleiks og lokaði markinu á köflum. Jón Þórarinn varði 17 skot, þar af vítaköst og var með tæplega 50 prósent markvörslu. Handbolti Olís-deild karla