Viðskipti innlent

Samherjahjónin fyrr­verandi langtekjuhæst

Árni Sæberg skrifar
Þorsteinn Már var tekjuhæsti Íslendingurinn í fyrra.
Þorsteinn Már var tekjuhæsti Íslendingurinn í fyrra. Vísir/Vilhelm

Hjónin fyrrverandi Þorsteinn Már Baldvinsson og Helga S. Guðmundsdóttir, fyrrverandi eigendur Samherja, voru langtekjuhæst Íslendinga í fyrra. Þorsteinn hafði heildartekjur upp á 4,7 milljarða króna og Helga upp á 4,56 milljarða.

Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Heimildarinnar, þar sem tekjur tekjuhæsta prósents þjóðarinnar eru teknar saman, miðað við skattgreiðslur árið 2024. Munurinn á tekjulista Heimildarinnar og tekjulista Frjálsrar verslunar er að Heimildin tekur bæði launa- og fjármagnstekjur inn í reikningin en Frjáls verslun einblínir á launatekjur.

Þorsteinn Már stofnaði Samherja ásamt frænda sínum Kristjáni Vilhelmssyni árið 1983 og félagið hefur síðan verið eitt öflugasta útgerðarfélag landsins. Þau Þorsteinn Már og Helga skildu árið 2007 en Helga var áfram meðal fjögurra stærstu eigenda Samherja, þangað til að þeir færðu félagið yfir á börn sín árið 2020.

Síðan þá hafa þau ekki verið nálægt efstu sætum tekjulistans fyrr en nú, með fjármagnstekjur á bilinu um 200 til 700 milljónir króna á ári.

Frá greiðslustöðvun yfir í fjögurra milljarða tekjur 

Þriðji á tekjulistanum er Árni Oddur Þórðarson, annar eigenda Eyris invest og fyrrverandi forstjóri Marels til fjölda ára, með heildartekjur upp á 3,9 milljarða króna, mest í formi fjármagnstekna.  Á meðan hann sat í forstjórastólnum tróndi hann iðullega á toppi launatekjulista Frjálsrar verslunar, líkt og eftirmaður hans í starfi gerir í ár.

Árið 2023 var stormasamt hjá Árna Oddi en þá lét hann af störfum sem forstjóri Marels í kjölfar veðkalls Arion banka í hluti hans í félaginu. Í kjölfarið fékk hann samþykkta greiðslustöðvun til þess að koma fjármálum sínum í rétt horf.

Það virðist hafa tekist vel hjá honum en greint var frá því um mitt ár í fyrra að samningar hefðu náðst við Arion banka og Árni Oddur væri orðinn stærsti einkafjárfestirinn í sameinuðu félagi JBT og Marel ásamt föður sínum og hópi fjárfesta.

Á aðalfundi Eyri invest hf. í mars á þessu ári samþykktu allir hluthafar félagsins tillögu stjórnar um lækkun hlutafjár með greiðslu til allra hluthafa félagsins utan Árna Odds og föður hans. Þeir voru þar með orðnir einu eigendur félagsins á ný.

Talandi um föður hans, Þórð Magnússon. Hann fylgir syni sínum fast á hæla á tekjulistanum með heildartekjur upp á tæplega 3,4 milljarða króna.

Frekari fjölskyldutengsl innan Marel, laxeldi og IKEA-bræður

Í fimmta sæti á listanum er Súsanna Sigurðardóttir, með heildartekjur upp á 3,2 milljarða, nánast eingöngu í fjármagnstekjum. Hún er einfaldlega titluð fjárfestir á lista Heimildarinnar en hún var um langt árabil meðal stærstu hluthafa í Marel. Það var systir hennar Ingunn einnig en hún er númer átta á tekjulistanum með heildartekjur upp á 1,6 milljarða króna. Þar af eru launatekjur aðeins 69 þúsund krónur á mánuði en hún er titluð hárgreiðslumeistari. 

Þær systur eru dætur Sigurðar Egilssonar, sem stofnaði Sigurplast og keypti vænan hlut í Marel árið 1990. Hann var sonur Egils Vilhjálmssonar athafnamanns.

Sjötti á listanum er Kjartan Ólafsson, fyrrverandi stjórnarformaður Arnarlax og einn helsti talsmaður sjókvíaeldis á Íslandi. Tekjur hans námu tæplega 2,2 milljörðum króna á síðasta ári.

Sjöundi er Jón Pálmason, fjárfestir og eigandi IKEA á Íslandi. Hann þénaði 1,8 milljarða króna á síðasta ári. Í ár keypti hann bróður sinn Sigurð Gísla út úr IKEA. Hann situr í ellefta sæti á listanum með 1,2 milljarða í tekjur. Þeir bræður eru synir Pálma Jónssonar í Hagkaupum.

Kristinn Reynir Gunnarsson, apótekari og fjárfestir vermir níunda sæti listans með heildartekjur upp á tæplega 1,4 milljarða króna. Hann hagnaðist verulega á sölu hlutar í Actavis á sínum tíma.

Þessari upptalningu verður lokið með manninum í tíunda sæti listans, Hannesi Hilmarssyni, eins stærsta eiganda flugfélagsins Air Atlanta. Tekjur hans námu 1,3 milljarði króna á síðasta ári. Drjúgur hluti þeirra tekna fór í kaup Hannesar og eiginkonu á einbýlishúsi Ingu Lindar Karlsdóttur í Mávanesi í Garðabæ. Þau greiddu 850 milljónir króna fyrir slotið, sem gerir það að dýrasta einbýlishúsi Íslandssögunnar. 

Tekjulista Heimildarinnar má nálgast hér.


Tengdar fréttir

Jón kaupir Sigurð Gísla út úr IKEA

Jón Pálmason hefur keypt helmingshlut Sigurðar Gísla Pálmasonar, bróður hans, í Miklatorgi hf., sem rekur IKEA hér á landi.

Kristinn Gunnarsson er skattakóngur Íslands

Kristinn Gunnarsson, sem seldi hlut í Actavis, var gjaldahæstur skattgreiðenda á síðasta ári og jafnframt sá sem greiðir hæstu gjöldin í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá skattstjóranum í Reykjavík greiðir hann 450.816.061 krónur í heildargjöld. Sigurður Sigurgeirsson frá Kópavogi greiðir næst mest yfir landið, eða 357.130.285 krónur og Vilhelm Róbert Wessman er í þriðja sæti með heildargjöld upp á 284.760.200 krónur.

Þorsteinn Már hættir hjá Samherja

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf., ritaði í dag bréf til starfsfólks þar sem hann greindi frá ákvörðun sinni um að láta af störfum sem forstjóri félagsins í júní næstkomandi. Hann er þó ekki sestur í helgan stein enda situr hann í stjórnum fjölda félaga, þar á meðal Samherja.

Samherjabörnin fá hlutabréfin frá foreldrunum

Fjórir aðaleigendur útgerðarfyrirtækisins Samherja, þar af forstjórinn Þorsteinn Már Baldvinsson, hafa framselt hlutabréfaeign sína í fyrirtækinu til barna sinna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×