Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Kjartan Kjartansson skrifar 22. ágúst 2025 08:44 Greta Thunberg og félagar mótmæla í höfuðstöðvum norska bankans DNB. Vísir/EPA Lögreglumenn báru hóp loftslagsmótmælenda, þar á meðal Gretu Thunberg, út úr norska seðlabankanum í morgun. Hópurinn hefur mótmælt á ýmsum stöðum í vikunni, þar á meðal við stærstu olíuhreinsistöð Noregs.
Norska ríkisútvarpið hefur eftir lögreglu að tæplega fimmtíu loftslagsaðgerðasinnar hafi lokað alla innganga að seðlabankanum í Osló í morgun. Af þeim hafi 29 verið bornir úr og kærðir fyrir að fylgja ekki fyrirmælum lögreglu. Mótmælendurnir lokuðu Karls Jóhannsgötu í höfuðborginni og fóru inn í útibú DNB-bankans, stærsta banka Noregs. Sextán manns voru kærðir vegna þeirra mótmæla. Hópurinn er á vegum róttæku aðgerðasamtakanna Útrýmingaruppreisnarinnar (e. Extinction Rebellion). Fyrr í vikunni mótmælti hópurinn við olíuhreinsistöðina í Mongstad. Krafa samtakanna er að norsk stjórnvöld leggi fram áætlun um hvernig jarðefnaeldsneyti verði tekið úr umferð. Sylvi Listhaug, leiðtogi Framfaraflokksins, sagði við það tækifæri að vísa ætti Thunberg úr landi. Lýsti hún sænska aðgerðasinnanum einnig sem glæpakvendi. Útrýmingaruppreisnin hefur undanfarin ár staðið fyrir mótmælaaðgerðum sem hafa meðal annars lamað umferð í stórborgum eins og London.
Loftslagsmál Noregur Jarðefnaeldsneyti Mest lesið Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Fleiri fréttir Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Sjá meira