Kirkjuklukkum hringt Bjarni Karlsson skrifar 7. ágúst 2025 07:03 Í dag kl. 13 mun að beiðni biskupa heyrast samhljómur kirkjuklukkna á Íslandi, í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi ásamt systurkirkjum okkar í Jerúsalem. Það er ákall um frið á Gaza og um alla veröld. Um öll lönd er fólk hvatt til að tendra ljós og biðja fyrir friði. Þá er gott að muna að kristin kirkja er ekki eitthvert skoðanafélag. Hún er dreifð og margbrotin fjöldahreyfing fólks sem reynir að vanda líf sitt í Jesú nafni. Hún er samvitund milljóna manna sem leitast við að horfa á heiminn frá sjónarhorni barnsins, eins og Jesús gerði.1 Þarfir barna Kristið fólk í veröldinni hefur alls kyns siði, viðhorf og aðferðir sem oft stangast á. Það sem sameinar og gerir kristna kirkju að alheimshreyfingu er bara Jesús. Jesús sýnir okkur að Guð er hér hjá okkur og deilir kjörum með venjulegu fólki. Jósef og María voru venjulegt fólk. Valdalaus almenningur á tímum barnamorða. Samt fékk drengurinn að alast upp og þroskast að visku og vexti og náð hjá Guði og mönnum, eins og það er orðað í Lúkasarguðspjalli.2 Börn þurfa samtal og nánd svo þau öðlist visku. Þau þurfa næringu og hreyfingu svo þau vaxi. Loks þurfa þau að lifa við sanngirni í umhverfi sínu; njóta náðar. Þeirra kjara naut Jesús sem barn og þess eiga öll börn að njóta að kristnum sið. Dómur Guðs Núna þegar morðöldur ganga yfir Gaza, Darfúrhérað í Súdan o.fl. byggðir skiljum við e.t.v. betur af hverju barnamorð eru tíunduð í langtímaminni mannkyns eins og það birtist í Biblíunni. Barnamorð hafa alltaf verið hluti af mannlegum kjörum. Barna- og þjóðarmorð eru ýtrasta grimmd. Nú eru einmitt 80 ár frá Hiroshima og Nagasagi, þegar vestræn menning brennimerkti sjálfa sig með því að svipta um 200 þúsund manns lífi dagana 6. og 9. ágúst. Sumt er svo skelfilega rangt að það jafnast aldrei. Það mun ekki koma sá dagur að nokkur geti sagt að grimmd nasista í síðari heimstyrjöld sé fyrirgefin þegar milljónir voru kerfisbundið drepnar fyrir það eitt að vera gyðingur, hommi, sígauni, fatlaður eða hvað annað sem talið var dauðavert. Ég held að Jesús hafi átt við svona hluti þegar hann segir: Hver synd og guðlöstun verður mönnum fyrirgefin en guðlast gegn andanum verður ekki fyrirgefið.3 Enginn sem vill vera vinur og nemandi Jesú getur horft fram hjá orðum hans þar sem hann talar um dómsdag og listar upp hvað það er sem góður Guð krefst af mönnum og að hverju guðleg reiði snýr þegar öllu er á botninn hvolft: Hungraður var ég en þér gáfuð mér ekki að eta, þyrstur var ég en þér gáfuð mér ekki að drekka, gestur var ég en þér hýstuð mig ekki, nakinn en þér klædduð mig ekki, ég var sjúkur og í fangelsi en ekki vitjuðuð þér mín. Þá munu þeir svara: Drottinn, hvenær sáum vér þig hungraðan eða þyrstan, gestkominn eða nakinn, sjúkan eða í fangelsi og hjálpuðum þér ekki? Hann mun þá svara þeim: Sannlega segi ég yður: Allt sem þér gerðuð ekki einum minna minnstu bræðra, það hafið þér ekki heldur gert mér.4 Öll elskuð og útvalin Þess vegna er kirkjuklukkum hringt í dag. Ómur þeirra er ákall til okkar allra, ákall um að þjóna Guði með því að horfa á veröldina í gegnum augu barnanna sem verða að mega treysta okkur. Jesús tekur sér stöðu við þeirra hlið og allra sem lifa varnarlaust ranglæti. Vegna Jesú Guðs sonar, sem fæddist inn í valdalitla fjölskyldu, gerðist allra bróðir og lifði ýtrustu grimmd, veit kirkja hans að öll erum við útvalin. Engin þjóð er útvalin umfram aðra, enginn menningarheimur, engin fjölskylda eða persóna er öðrum fremri í augum Guðs. Öll erum við elskuð Guðs börn. Sameinumst á forsendum lífsins Og nú hefur heimurinn skroppið saman með því að fólki fjölgar og tæknin magnast. Það er ekkert hægt að fara. Það er fólk úti um allt. Menn geta dregið sín landamæri en í hjarta Guðs búa öll við sama haf og anda að sér sama súrefni. Fyrir skömmu var ég í fjöruferð með nokkrum barnabörnum. Við gerðum að leik okkar að snúa við steinum til að dást að iðandi lífi sem leyndist undir hverjum steini. Klukknaómurinn sem í dag berst um byggðir er trúarjátning og viljayfirlýsing sem snýr að lífinu sjálfu í allri sinni fjölbreyttu dýrð. Við trúum því að mannkyn sé á för með öllu sem lifir í átt til Guðs.5 Við erum meðvituð um skaðann sem við erum aðilar að gagnvart hvert öðru og allir náttúru.6 Tími skaðaminnkunnar á öllum sviðum er runninn upp.7 Stöðvum barnamorð, hindrum þjóðarmorð, sameinumst á forsendum lífsins. Höfundur er prestur og siðfræðingur. 1 Matt. 18.102 Lúk. 2.523 Matt. 12.304 Matt 25.42-455 Róm. 8.18-256 Jes. 6.57 Róm. 13.10 Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Bjarni Karlsson Mest lesið Gerir háskólanám þig að grunnskólakennara? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Kirkjuklukkur hringja Bjarni Karlsson Skoðun „Er allt í lagi?“ Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Göngum í Haag hópinn Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Skoðun Fordómar gagnvart hinsegin fólki – Reynslusaga Geir Gunnar Markússon Skoðun Stríð skapar ekki frið Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Norska leiðin er fasismi Jón Frímann Jónsson Skoðun Úr skotgröfum í netkerfin: Netárásir á innviði Vesturlanda Ýmir Vigfússon Skoðun Tímabær rannsókn dómsmálaráðuneytisins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Skoðun Ævinlega þakkláti flóttamaðurinn Zeljka Kristín Klobucar Skoðun Skoðun Skoðun Úr skotgröfum í netkerfin: Netárásir á innviði Vesturlanda Ýmir Vigfússon skrifar Skoðun Fordómar gagnvart hinsegin fólki – Reynslusaga Geir Gunnar Markússon skrifar Skoðun „Er allt í lagi?“ Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Göngum í Haag hópinn Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Kirkjuklukkur hringja Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Gerir háskólanám þig að grunnskólakennara? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð skapar ekki frið Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Íslenska stóðhryssan og Evrópa Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvammsvirkjun – Skyldur ráðherra og réttur samfélagsins Eggert Valur Guðmundsson skrifar Skoðun Norska leiðin er fasismi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Um mýkt, menntun og von Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Höfum alla burði til þess Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Tímabær rannsókn dómsmálaráðuneytisins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Skoðun Umsókn krefst ákvörðunar – ekki ákalls Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hjálp, barnið mitt spilar Roblox! Kristín Magnúsdóttir skrifar Skoðun Líkindi með guðstrú og djöflatrú Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Ævinlega þakkláti flóttamaðurinn Zeljka Kristín Klobucar skrifar Skoðun Vér vesalingar Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Leikrit Landsvirkjunar Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að loka landinu – við þurfum að opna augun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Svona eða hinsegin, hvert okkar verður næst? Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Reynisfjara og mannréttindasáttmáli Evrópu Róbert R. Spanó skrifar Skoðun Að hlúa að foreldrum: Forvörn sem skiptir máli Áróra Huld Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ákall til íslenskra stjórnmálamanna Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Þurfum við virkilega „leyniþjónustu”? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Byrjað á öfugum enda! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Væri ekki hlaupið út aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Gervigreind fyrir alla — en fyrir hvern í raun? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hefur ítrekað hótað okkur áður Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna umsóknar um aðild að ESB er stjórnsýslugrín! Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að loka landinu – við þurfum að opna augun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna umsóknar um aðild að ESB er stjórnsýslugrín! Júlíus Valsson skrifar