Erlent

Bolsonaro í stofu­fangelsi

Agnar Már Másson skrifar
Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseti Brasilíu, stundum kallaður „Trump dós Tropicos“.
Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseti Brasilíu, stundum kallaður „Trump dós Tropicos“. AP/Eraldo Peres

Hæstiréttur Brasilíu hefur skipað Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseti landsins, í stofufangelsi en hann á yfir höfði sér ákæru vegna meintrar valdaránstilraunar. Alríkislögreglan hefur lagt hald á símann hans.

Í gær var mótmælt víða um landið til stuðnings Bolsonaro, sem hefur sakað yfirvöld um nornaveiðar, en forsetinn fyrrverandi róttækur hægrimaður og nýtur stuðnings Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.

Forsetinn fyrrverandi hefur þegar þurft að ganga um með ökklaband síðustu tvær vikur og verið gert að dvelja á heimili sínu á næturnar. En nú er honum alfarið óheimilt að yfirgefa heimili sitt.

Hæstaréttardómarinn Alexandre de Moraes tilkynnti þetta í dag, mánudag, að því er brasilíski miðillinn G1 greinir frá. Dómarinn segir að Bolsonaro hafi brotið gegn varúðarráðstöfunum sem dómurinn hafði sett honum.

Frá mótmælum til stuðnings Bolsonaro í gær, sunnudag.AP

Í úrskurði Hæstaréttar segir að Bolsonaro hafi notað samfélagsmiðlareikninga bandamanna sinna, þar á meðal þriggja sona sinna sem allir eru þingmenn, til að dreifa efni sem hvatti bæði til og kynti undir árásir á Hæstarétt Brasilíu. Í færslum sé stuðningi lýst yfir við erlenda íhlutun í brasilíska dómskerfið. Ein af þessum færslum hafi birst á sunnudag vegna mótmæla í borgum um allt landið til stuðnings Bolsonaro.

Alexandre de Moraes, Hæstaréttardómari í Brasilíu.AP

Bolsonaro er sakaður um að hafa reynt að snúa við niðurstöðu kosninga 2022 þegar hann tapaði gegn Luiz Inacio Lula da Silva, núverandi forseta. Í janúar 2023 réðst fjöldi stuðningsmanna Bolsonaro inn í brasilíska þinghúsið. Yfirvöld í Brasilíu halda því fram að ætlunin hafi verið að taka Lula forseta af lífi. 

Bolsonaro hefur írekað neitað sök og sagt að hann þurfo að þoli nornaveiðar. Málið minnir óneitanlega á mál Trumps, sem var ákærður vegna meintrar valdaránstilraunar sinnar 2021 en Bolsonaro hefur verið kallaður „Trump dos trópicos“ í heimalandinu, þ.e. Hitabeltis-Trump.

Bandaríkjamenn hafa nú tilkynnt um 50 prósenta toll sem tekur gildi á miðvikudag, meðal annars vegna meintra „ofsókna“ í garð Bolsonaro, skrifar Hvíta húsið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×