Fótbolti

Lars Lagerbäck: Það verður enginn hálshögginn fyrir þetta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lars Lagerbäck hefur starfað sem sérfræðingur í sænsku sjónvarpi síðan að hann hætti að þjálfa.
Lars Lagerbäck hefur starfað sem sérfræðingur í sænsku sjónvarpi síðan að hann hætti að þjálfa. Getty/Michael Campanella

Lars Lagerbäck kom sænska landsliðsþjálfaranum Peter Gerhardsson til varnar eftir að sænska kvennalandsliðið missti niður tveggja marka forystu í átta liða úrslitunum á móti Englandi í gærkvöldi.

Sænska liðið komst í 2-0 í leiknum en fékk á sig tvö mörk á lokamínútum leiksins. Í vítakeppninni fékk sænska landsliðið nokkur tækifæri til að tryggja sig áfram en þær klúðruðu alls fimm vítaspyrnum. England vann vítakeppnina 3-2 og komst í undanúrslitin.

„Það verður enginn hálshögginn fyrir þetta, fyrir að klikka á vítaspyrnu í vítakeppni,“ sagði Lars Lagerbäck, fyrrum þjálfari íslenska landsliðsins.

Lagerbäck lenti í því sama þegar hann þjálfaði sænska karlalandsliðið með Tommy Söderberg á EM 2004. Sænska landsliðið tapaði þá í vítakeppni á móti Hollendingum eftir að Zlatan Ibrahimovic og Olof Mellberg klikkuðu báðir á sínum vítaspyrnum.

Í gær voru það Filippa Angeldahl, Magdalena Eriksson, Jennifer Falk, Sofia Jakobsson og Smilla Holmberg sem tókst ekki að skora úr sínum vítaspyrnum.

„Vanalega í fótboltaliði þá er enginn tekinn af lífi vegna þess að þeir klikkuðu á víti. Það þekkja allir þessa tilfinningu. Ef eitthvað er sagt á þessum tímapunkti þá er það eitthvað jákvætt,“ sagði Lagerbäck.

„Við reynum að styðja við bakið á þeim sem finnst þau hafa brugðist öllum,“ sagði Lagerbäck.

„Þetta mun samt án efa svíða. Ég veit það í gengum þá sem klikkuðu á víti á EM í Portúgla (EM 2004). Þetta mun herja á þær lengi,“ sagði Lagerbäck.

Sænska goðsögnin Lotta Schelin gagnrýndi það að átján ára stelpa hafi verið látin taka víti þegar fjórar munu reyndari áttu eftir að taka víti. Hennar víti réði á endanum úrslitum því enska liðið var búið að vinna um leið og hún skaut yfir. 

Smilla Holmberg er aðeins átján ára gömul og að taka þátt í sínu fyrsta stórmóti.

„Það mikilvægasta hér er að hún fái stuðning frá liðsfélögum sínum, bæði leikmönnum og starfsmönnum. Mér fannst hún fá það,“ sagði Lagerbäck.

„Það var betra fyrir hana að hún var ekki sú eina sem klikkaði. Margir af reynslumestu leikmönnum liðsins klikkuðu líka,“ sagði Lagerbäck.

Lagerbäck er ekki á því að landsliðsþjálfarinn hafi átt að gera eitthvað öðruvísi þegar kom að skiptingum eða vali á vítaskyttum.

„Utan frá séð þá fannst mér hann gera þetta rétt,“ sagði Lagerbäck.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×