Fótbolti

Tvö rauð spjöld er Inter komst á­fram

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Francesco Esposito skoraði opnunarmarkið, sitt fyrsta fyrir félagið.
Francesco Esposito skoraði opnunarmarkið, sitt fyrsta fyrir félagið. Buda Mendes/Getty Images

Ítalska liðið Inter er komið áfram í sextán liða úrslit á HM félagsliða eftir 2-0 sigur í nótt gegn River Plate, í leik þar sem tvö rauð spjald fóru á loft.

Inter endaði í efsta sæti E-riðilsins með sigrinum. Leikurinn var rólegur framan af en mjög fjörugur þegar líða fór á.

Um miðjan seinni hálfleik fékk Lucas Quarta að líta rautt spjald þegar Inter var að sleppa í gegn. Skömmu síðar tók Inter svo forystuna með marki Francesco Esposito, sem fékk boltann í vítateignum, sneri vel og skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið.

Alessandro Bastoni bætti svo öðru marki Inter við í uppbótartíma með góðum spretti upp úr miðvarðarstöðunni og fínni afgreiðslu. Bæði mörk Inter má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Tveimur mínútum síðar missti River Plate annan mann af velli þegar Gonzalo Montiel fékk að fjúka fyrir rifrildi.

Borussia Dortmund tryggði sér fyrr um kvöldið efsta sæti F-riðilsins og sæti í sextán liða úrslitum þar sem þýska liðið mætir Monterrey frá Mexíkó, sem endaði í öðru sæti E-riðilsins, þann 1. júlí í Atalanta.

Brasilíska liðið Fluminense endaði svo í öðru sæti F-riðilsins og mætar þar af leiðandi Inter í sextán liða úrslitum í Charlotte mánudaginn 30. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×