Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2025 19:23 Harvey Elliott var valinn maður leiksins í undanúrslitaleiknum þar sem hann skoraði bæði mörk enska landsliðsins. Getty/Tullio Puglia Enska 21 ára landsliðið í knattspyrnu tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleiknum á Evrópumótinu í Slóvakíu.
England vann þá 2-1 sigur á Hollandi í undanúrslitunum og mætir Þýskalandi í úrslitaleiknum. Liverpool maðurinn Harvey Elliott var hetja enska liðsins í kvöld því hann skoraði bæði mörkin. Elliott kom Englandi í 1-0 á 62. mínútu en Hollendingar jöfnuðu með marki Noah Ohio á 72. mínútu. Elliott skoraði sigurmarkið fjórum mínútum fyrir leikslok eftir sendingu frá Hayden Hackney sem spilar með Middlesbrough. Englendingar eiga titil að verja því þeir unnu Spán 1-0 í úrslitaleiknum fyrir tveimur árum. Harvey Elliott var líka í því liði. Þetta verður í fimmta sinn með England spilar til úrslita á EM í þessum aldursflokki. Elliott er kominn með fjögur mörk á mótinu og er næstmarkahæstur á eftir Þjóðverjanum hávaxna Nick Woltemade. Það er spurning hvort að þessi frammistaða fái Liverpool til að hætta við að selja Elliott eins og hefur verið mikið rætt og skrifað um í sumar. Þýskaland vann 3-0 sigur á Frökkum í hinum úrslitaleiknum þar sem að umræddur Woltemade skoraði sitt sjötta mark á Evrópumótinu. Hitt mark þýska liðsins í fyrri hálfleik skoraði Nelson Weiper en bæði mörkin komu á fyrstu fjórtán mínútum leiksins. Brajan Gruda innsiglaði síðan sigurinn í uppbótatíma. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible)
Enski boltinn Mest lesið McIlroy glaður að vera laus við pólitíkina í golfi Sport Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Körfubolti Sektaður um þrjár milljónir fyrir að kasta flösku í áhorfanda Körfubolti Arnór og Stiven mættust í Íslendingaslag Handbolti Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Körfubolti Arnar hitti úr öllu og Þorsteinn hamraði á markið Handbolti Stærsta tap tímabilsins beið Fram í Sviss Handbolti Arna hélt hreinu og lagði upp sigurmarkið Fótbolti Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima Enski boltinn Fram hirti sigur af Haukum eftir æsispennu Handbolti Fleiri fréttir Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima „Menn beita öllum brögðum“ Er framherji Brentford óvænt að banka á landsliðsdyrnar hjá Brasilíu? Nagelsmann um Wirtz: Liðsfélagarnir í Liverpool gætu nú aðeins hjálpað honum Kaldasta fagnið í bransanum orðið að vörumerki Liverpool kvartar í dómarasamtökunum „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Mætti sínu gamla liði í fyrsta sinn og skoraði tvö sjálfsmörk Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Sanngjarn heimasigur Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Fantasýn: Er að hugsa um að taka fyrirliðabandið af Haaland Slot segir að Isak sé byrjaður aftur að æfa en bað um eitt Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Sjá meira