Enski boltinn

Curtis Jones farinn til Inter

Stefán Árni Pálsson skrifar
Curtis Jones leikur á Ítalíu á næsta tímabili.
Curtis Jones leikur á Ítalíu á næsta tímabili.

Curtis Jones hefur yfirgefið uppeldisfélagið Liverpool og gengið í raðir Inter á Ítalíu. Þetta hefur verið staðfest eftir að enski miðjumaðurinn gekkst undir læknisskoðun í Mílanó.

Jones, sem er 25 ára, hefur verið hjá Liverpool frá níu ára aldri og hefur því eytt nær öllum sínum fótboltaferli hjá félaginu. Hann kveður nú Anfield eftir 16 ára dvöl.

Inter greiðir Liverpool 30 milljónir evra fyrir leikmanninn, en upphæðin getur hækkað um fimm milljónir evra í formi bónusa. Liverpool fær einnig ákvæði um endursölu í samningnum.

Jones átti eitt ár eftir af samningi sínum við Liverpool.

Hann lék 49 leiki fyrir Liverpool á síðasta tímabili en byrjaði 28 þeirra. Jones átti þó í erfiðleikum með að tryggja sér fast sæti í byrjunarliðinu.

Í Mílanó bíður hans nýtt ævintýri með Inter. Þar verður hann meðal annars samherji ensku landsliðsmannanna John Stones og Djed Spence, sem gengu einnig til liðs við ítalska félagið í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×