Menntaumræða á villigötum Gunnlaugur Magnússon skrifar 25. október 2024 15:01 Ljóst er að menntamál er eitt af aðalatriðum kosningabaráttu ársins en menntun yngri kynslóða þarfnast svo sannarlega betri stjórnunnar en hingað til hefur verið beitt. Sem dæmi má nefna tilraunir ráðherra fráfarandi ríkisstjórnar til að finna lausnir á vandamálum skólanna, annars vegar með því að leggja niður stofnanir og stofna nýjar, hins vegar með því að velta fyrir sér nýjum breytingum á lengd náms þrátt fyrir að reynslan af síðustu breytingum sé enn fersk og varla í takti við þau markmið sem sett voru upp. Þá má einnig nefna þá gagnrýni sem ummæli borgarstjóra Reykjavíkur um kennarastéttina vöktu, en þar er lýst takmörkuðum skilningi á stöðu kennarastéttarinnar og virðingarleysi gangvart störfum kennara. Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri viðskiptaráðs kom þó fram með tölur til að staðfesta mál borgarstjórans. Því ber að fagna þegar menntaumræðan fer fram grundvölluð í gögnum en ég hef ákveðnar athugasemdir við túlkun og framsetningu Viðskiptaráðs á þeim tölum sem lagðar voru fram. Tölurnar sem Viðskiptaráð setur fram hvað varðar fjölgun kennara og nemenda koma frá vef Hagstofunnar sem býður fram á útreikninga á einmitt þessum breytum og ártölum. Ártalið 1998 er byrjunarreitur útreikningsins og þar sem Hagstofan sýnir ekki eldri gögn eru sviptingar fyrri ára ósýnileg í tölunum, til dæmis hver áhrifin voru á kennarastéttina þegar þau urðu starfsfólk sveitarfélaganna og ekki ríkisstarfsmenn seint á síðustu öld. Við frekari rýni segja bæði eldri tölur frá Hagstofunni sem og þær sem Viðskiptaráð setur fram flóknari sögu en gefið er í skyn í grein ráðsins. Til dæmis fjölgaði nemendum per stöðugildi kennara frá 2008 til 2012 og ef nýjustu tölur Hagstofunnar eru skoðaðar má sjá stöðuga fækkun kennara milli 2008 til 2016. Fjöldi kennara í varð ekki sambærilegur við 2008 fyrr en árið 2017 þrátt fyrir stöðuga aukningu nemenda yfir allt tímabilið. Samtímis hefur nemendum með flóknari þarfir og erlendan bakgrunn fjölgað og einmitt þar má finna lógíska útskýring á aukinni þörf fyrir starfsfólk í skólakerfinu. Að lokum stinga þessar breytingar með aukningu kennara og fækkun nemenda ekki sérstaklega í stúf í samanburði við önnur OECD lönd samkvæmt skýrslunni sem vitnað er til, Education at a Glance 2024. Framsetning Viðskiptaráðs um fjölgun nemenda og starfsfólks er með öðrum orðum ekki nákvæm þótt tölurnar séu ekki rangar. Það sama má segja um tölurnar sem Viðskiptaráð setur fram um veikindahlutföll kennara á Íslandi og um starfsálag þeirra í alþjóðlegu samhengi. Því ber að fagna að Viðskiptaráð veiti óvenju háu veikindahlutfalli kennara athygli og einnig að vísað sé í starfsaðstæður sem mögulega skýringu. Það virðist hinsvegar þversagnakennt að samtímis tala um að kennarar hafi fjölgað um of, séu með of fáa nemendur og alltof litla kennsluskyldu. Sérstaklega í ljósi rannsókna um kulnun í stéttinni og starfsálag kennara. Viðskiptaráð segir einnig íslenska grunnskólakerfið dýrt í samanburði við önnur OECD lönd. en flækjustigið er aftur meira en virðist af samanburðinum. Það að íslenskt samfélag fjárfesti mikið í menntakerfinu er hins vegar er bæði jákvætt og til fyrirmyndar, enda væri það að vera við meðaltal á lista OECD þar sem fjöldi landa fjárfestir lítið í menntun íbúa sinna varla eftirsóknarvert fyrir metnaðarfullt þekkingarsamfélag. Það er hins vegar mjög augljós útskýring á að að dreifstýrt menntakerfi Íslands með fjölda örsmárra sveitarfélaga sé dýrt per nemenda eða með færri nemendur per kennara að meðaltali miðað við OECD. Á Íslandi eru enda einungis örfá sveitarfélög með bolmagn til að byggja upp hagkvæmt stuðningskerfi við skólana en í tölunum um kostnað kerfisins er sveitarfélögum eins og Reykjavík með 140.000 íbúa og Bolungarvík með tæpa 1.000 íbúa blandað saman. Fyrir vikið munu öll meðaltöl um kostnað og umfang kerfisins á landsvísu vera há, sérstaklega í samanburði við mun stærri lönd. Viðskiptaráð segir í síðari ummælum á að sú staða sé afleiðing pólitískra ákvarðana sem gætu verið öðruvísi. Ég er auðvitað sammála því en bendi á að út frá þeim tölum sem settar eru fram mætti færa rök fyrir að ríkið ætti að taka til sín ábyrgðina á fjármögnun og stjórn skólakerfisins til að nýta úrræðin betur. Athugasemdirnar við tölur Viðskiptaráðs er engin afneitun á því að íslenskt menntakerfi eigi við mörg vandamál að glíma, ekki síst hvað varðar nýliðun og heilbrigði í kennarastétt, aðgengi að leikskólum með menntað starfsfólk, vellíðan nemenda og læsi þeirra sem og skort á innlendum verkfærum til að meta menntakerfið. Að sjálfsögðu tek ég sem stunda rannsóknir á menntamálum undir það að rannsaka beri bæði vandamálin og mögulegar lausnir á þeim vel og vandlega, sérstaklega þegar það kemur að starfsaðstæðum kennara sem gerir þá veikari en aðrar stéttir. Færa má rök fyrir því að þessi vandamál eigi rætur sínar í stjórnun kerfisins. Menntamálapólitík á Íslandi er nefnilega oft óreiðukennd, einkennist af ráðherraræði og að eigin sögn skorti á fagmennsku, skorti á víðari markmiðum til lengri tíma, einkennist oft af innflutningi á hugmyndafræði og hugtakasafni alþjóðlegra stofnana (eins og OECD), byggir meira á metnaðarfullum klisjum en mælanlegum markmiðum og virðingarleysi gagnvart kennurum er landlægt. Víða er pottur brotinn í menntamálum en það þarf að skoða það sem afleiðingu stjórnunar kerfisins því kennarastéttin hefur það alveg áreiðanlega ekki of náðugt í vinnuni. Höfundur er dósent við Menntavísindadeild Uppsalaháskóla. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skóla- og menntamál Kennaraverkfall 2024 Mest lesið Halldór 07.03.2026 Halldór Kaþólska kirkjan elskar okkur öll Einar Baldvin Árnason Skoðun Látum oss ganga í ESB Hannes Örn Blandon Skoðun Kíkjum í pakkann! Dóra Magnúsdóttir Skoðun Þjóðin kölluð að borðinu Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Karlar - ekki burðast með þetta einir Þorri Snæbjörnsson Skoðun Bílastæði eða blómaker? Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun „Engar varanlegar undanþágur í boði lengur“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Líknarmeðferð og dánaraðstoð: ekki andstæður Ingrid Kuhlman Skoðun Opið bréf til Læknafélags Íslands Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kaþólska kirkjan elskar okkur öll Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Karlar - ekki burðast með þetta einir Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Þjóðin kölluð að borðinu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Kíkjum í pakkann! Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Líknarmeðferð og dánaraðstoð: ekki andstæður Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun „Engar varanlegar undanþágur í boði lengur“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Bílastæði eða blómaker? Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Látum oss ganga í ESB Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Viljum við ekki öruggt vatn? Kjartan Kjartansson skrifar Skoðun Innviðaskuldin – á almenningur að borga hana tvisvar? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hún er eldflaug, hún er rúta, hún er kafbátur… Sindri Freysson skrifar Skoðun Næsti kjarasamningur verður að vera VR samningur Gabríel Benjamin skrifar Skoðun Getum við öryrkjar siglt þjóðarskútinni í strand? Þorbjörn V. Jóhannsson skrifar Skoðun Eina leiðin er að ganga til viðræðna við ESB - stéttarfélög geta ekki staðið hjá Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til Læknafélags Íslands Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Enginn stendur ofar lögum – heldur ekki trúfélög Anna Margrét Kaldalóns,Eydís Mary Jónsdóttir,Lilja Torfadóttir,Petra Hólmgrímsdóttir,Rut Ríkey Tryggvadóttir skrifar Skoðun Athygliskortur ekki vandamál Arnar Halldórsson skrifar Skoðun Er barnið mitt einskis virði? Rakel Sófusdóttir skrifar Skoðun Betra starfsumhverfi á kostnað foreldra? Örn Arnarson skrifar Skoðun Varhugaverðar hugmyndir ráðherra um breytingar á raforkulögum Friðrik Már Sigurðsson skrifar Skoðun Ýta birtingar á niðurstöðum samræmdra prófa undir stéttaskiptingu? Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar Skoðun Getum við hætt orðaleikjum um einhverfa og farið að gera eitthvað? Ásdís Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Stæðiskort fyrir hreyfihamlaða – þegar góð hugmynd missir marks Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Hvenær verður ágreiningur að hatursorðræðu? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Raunhæf skref inn í sterkari framtíð Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvernig getur íþróttaþjálfari breytt lífi barns með málþroskaröskun (DLD)? Álfhildur Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Endursamningar lykillinn að stórbættum fjárhag Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Seltjarnarnes getur orðið framúrskarandi bæjarfélag! Áslaug Eva Björnsdóttir skrifar Skoðun Ábending til þjóðaröryggisráðs og ríkisstjórnarinnar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Trú trompar ekki lög Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Eina leiðin er að ganga til viðræðna við ESB - stéttarfélög geta ekki staðið hjá Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun Enginn stendur ofar lögum – heldur ekki trúfélög Anna Margrét Kaldalóns,Eydís Mary Jónsdóttir,Lilja Torfadóttir,Petra Hólmgrímsdóttir,Rut Ríkey Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Varhugaverðar hugmyndir ráðherra um breytingar á raforkulögum Friðrik Már Sigurðsson skrifar
Skoðun Ýta birtingar á niðurstöðum samræmdra prófa undir stéttaskiptingu? Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar
Skoðun Getum við hætt orðaleikjum um einhverfa og farið að gera eitthvað? Ásdís Bergþórsdóttir skrifar
Skoðun Stæðiskort fyrir hreyfihamlaða – þegar góð hugmynd missir marks Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Hvernig getur íþróttaþjálfari breytt lífi barns með málþroskaröskun (DLD)? Álfhildur Þorsteinsdóttir skrifar