Grátlegt tap niðurstaðan og barátta um sæti í A-deild framundan Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 17. júlí 2024 21:21 Almar Orri í leik kvöldsins. FIBA Íslenska drengjalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri mátti þola grátlegt eins tap gegn Belgíu í kvöld. Með sigri hefði Ísland komist í 8-liða úrslit Evrópumótsins sem nú fer fram í Póllandi sem og tryggt tilverurétt sinn í A-deild.
Leikurinn var gríðarlega jafn í upphafi en frábær annar leikhluti Íslands þýddi að liðið var átta stigum yfir í hálfleik. Íslenska liðinu tókst ekki að byggja ofan á það í upphafi síðari hálfleiks og Belgíu tókst að minnka muninn. Í fjórða leikhluta var munurinn litill sem enginn en Belgía hænuskrefi á undan. Íslenska liðið fékk hins vegar tækifæri til að vinna leikinn með síðustu sókn leiksins en ofan í vildi boltinn ekki og Belgía fagnaði því ógurlega þegar flautan gall, lokatölur 74-73 í háspennuleik. Ísland leikur nú um 9. til 16. sætis á mótinu en neðstu tvö liðin falla niður í B-deild. Strákarnir fá ekki langan tíma til að sleikja sárin en liðið mætir Serbíu strax á morgun. Almar Orri Atlason var stigahæstur hjá Íslandi í kvöld með 19 stig ásamt því að taka fimm fráköst. Þar á eftir komu Tómas Valur Þrastarson og Ágúst Goði Kjartansson með 18 stig hvor. Tómas Valur tók einnig 7 fráköst og gaf 4 stoðsendingar. Tómas Valur í leik kvöldsins.FIBA
Körfubolti Landslið karla í fótbolta Mest lesið Uppgjörið: Aserbaísjan - Ísland 0-2 | Öruggur sigur og úrslitaleikur framundan Fótbolti Ronaldo sá rautt og óð reiður til Heimis Fótbolti Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Golf Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann sniðugan Fótbolti Mætti á völlinn með jólamynd af Stefáni Teiti og frú Fótbolti Leiðin á HM: Fjögur þúsund manns hurfu sporlaust Fótbolti Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Fótbolti KR - Njarðvík 88-97 | Dýrmætur sigur gestanna Körfubolti Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍR - Grindavík 78-86 | Tveimur hent úr húsi en toppliðið heldur flugi Körfubolti Fleiri fréttir „Í öllum góðum hópum er alltaf einn sem labbar aftur á bak“ Uppgjörið: Keflavík - ÍA 96-72| Sigur Keflavíkur aldrei í neinni hættu Meistararnir stungu af í seinni Uppgjörið: ÍR - Grindavík 78-86 | Tveimur hent úr húsi en toppliðið heldur flugi KR - Njarðvík 88-97 | Dýrmætur sigur gestanna ÍA sækir Kanann sem Ármann losaði Extraleikarnir: Mættu báðir með markvörð úr silfurliðinu í Peking „Heimskuleg taktík hjá mér“ Sátt eftir fyrsta landsleikinn: „Vá, ég er eiginlega orðlaus“ Uppgjörið: Ísland - Serbía 59-84 | Löguðu erfiða stöðu Elvar með sautján stig gegn sínu gamla félagi Martin stoðsendingahæstur í sigri Nýtt fyrirkomulag á vali leikmanna í stjörnuleik NBA „Þjálfun snýst um samskipti“ Rebekka Rut spilar fyrsta landsleikinn í kvöld Ármenningar leggja árar ekki í bát og leita að nýjum Kana „Mér finnst við vera að taka skref í rétta átt fyrir framtíðina“ Sektaður um þrjár milljónir fyrir að kasta flösku í áhorfanda Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Stjórinn sem skipti Doncic frá Dallas missir starfið Bæði Florída-liðin unnu á flautukörfu í nótt og svona fóru þau að því Lofuðu Óla Óla og fengu hann svo í beina útsendingu úr búningsklefanum Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Blikarnir taplausir á toppnum Sonur Dominique Wilkins með vindmyllutroðsluna í blóðinu Kári og Kristó eru skemmtilegasta kombóið í þessari deild NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Sjá meira