Að vita betur en vísindin Birgir Birgisson skrifar 7. mars 2024 09:00 Síðdegisþáttur Bylgjunnar, Reykjavík síðdegis, veltir upp ýmsum málum, nú síðast (6. mars) umræðunni um það hvort leyfa eigi ökumönnum á Íslandi að taka hægri beygju á gatnamótum jafnvel þó umferðarljós á þeirra akstursstefnu lýsi rauðu ljósi. Þáttarstjórnendur ræddu góða stund við Vilhjálm Árnason þingmann, sem er 2. varaformaður í Umhverfis- og Samgöngunefnd Alþingis. Hvort það þýði að þingmaðurinn hafi einhverja sérstaka innsýn í umferðaröryggismál umfram aðra skal ósagt látið. En Vilhjálmi “finnst” þetta góð hugmynd og viðtalið bar þess ýmis merki að hann hafi lítið gert til að kynna sér staðreyndir málsins. Einn af þáttarstjórnendum sagðist í viðtalinu telja að í Danmörku væri hægri beygja á móti rauðu ljósi leyfð. Varaformaðurinn tók undir það, en sagðist þó ekki vilja slá því alveg föstu, var greinilega ekki alveg viss. Enda kemur í ljós að Danir leyfa ekki og hafa aldrei leyft slíkar beygjur. Staðreyndin er sú að Danir eiga í mesta basli með öryggi óvarinna vegfarenda við einmitt þessar aðstæður, þ.e. hægri beygju bíla þar sem umferð óvarinna vegfarenda í sömu akstursstefnu heldur beint áfram. 5 dauðaslys og 80 alvarleg slys verða í Danmörku á hverju ári við einmitt þessar aðstæður. Og þó eru samgönguinnviðir þar í landi yfirleitt mun betur hannaðir og byggðir en hér. Þegar við skoðum lista yfir lönd þar sem hægri beygjur gegn rauðu ljósi eru leyfðar, er þar ekki að finna neitt af þeim löndum sem við viljum gjarna bera okkur saman við í umferðaröryggismálum. Á listanum er ekki eitt einasta Evrópuland og ekkert af þeim löndum sem litið er til sem fyrirmynda við uppbyggingu öruggra innviða fyrir umferð. Það er áhyggjuefni að 2. varaformaður Samgöngunefndar Alþingis viti þetta ekki þegar hann fer í útvarpsviðtal um jafn mikilvægt mál. Á listanum eru, fyrir utan Bandaríkin, Kanada og Mexíkó, eingöngu lönd í Suður-Ameríku, Asíu og nokkur Mið-Austurlönd. Reyndar voru slíkar beygjur leyfðar í Litháen, amk við vissar aðstæður. En þeim reglum var nýlega breytt og leyfið afturkallað árið 2020. Reynsla þeirra þjóða sem leyfa hægri beygju á rauðu er heldur ekki til mikillar eftirbreytni. Rannsókn sem var framkvæmd í Bandaríkjunum á gatnamótum þar sem slíkar beygjur voru leyfðar en höfðu ekki verið það áður, leiddi í ljós að slys á gangandi vegfarendum jukust um nærri 60% og slys á hjólandi vegfarendum tvöfölduðust. Rannsóknin var endurtekin rúmum áratug síðar og þá voru niðurstöðurnar litlu betri. En varaformaðurinn hafði litlar áhyggjur af aukningu slysa, þetta mætti koma í veg fyrir með “forvörnum”. Hvaða forvarnir það eiga að vera kom reyndar ekki fram, enda virtist mun mikilvægara að koma því að hversu gífurlega mikilvægt umhverfismál það væri að þvinga ekki ökumenn til að bíða á rauðu ljósi með bílvélar í gangi og þar af leiðandi auka mengun. Þetta fannst þingmanninum mikilvæg rök þrátt fyrir að flestir nýir bílar sjái nú sjálfir um það að slökka á vélinni þegar beðið er á rauðu ljósi. Jafnvel í þeim löndum sem teljast fyrirmyndir flestra bæði í umhverfismálum og umferðaröryggi, og eru þar að auki með miklu ríkari hjólamenningu en við höfum á Íslandi, eins og t.d. í Hollandi og Danmörku, er talið mun öruggara að leyfa ekki hægri beygjur gegn rauðu ljósi. Í þessum sömu löndum eru gæði umferðarfræðslu og kennslu til ökuréttinda einnig til fyrirmyndar. Þrátt fyrir það er ökumönnum þessara landa ekki treyst til að beygja til hægri á móti rauðu ljósi. Getur verið að varaformaðurinn lumi á einhverjum nýstárlegum forvörnum sem umferðaröryggissérfræðingum þessara landa hafi bara hreint ekki dottið í hug? Raunar er það aðdáunarvert hve mikla trú þingmaðurinn hefur á íslenskum ökumönnum. Rök hans fyrir því að slysum myndi ekki fjölga ef hægri beygjur á rauðu ljósi yrðu leyfðar voru aðallega þau að við 90 gráðu beygju á gatnamótum fari ökutæki það hægt að ökumenn myndu sjálfkrafa líta til beggja hliða. Glöggir lesendur átta sig væntanlega strax á því að á milli þessara tveggja atriða eru engin bein orsakatengsl. Ef slík tengsl væru til staðar, þ.e. ef það væri rétt að lítill hraði leiddi sjálfkrafa til þess að ökumenn gái vel til beggja hliða og sýni annarri umferð fullt tillit þá væri aldrei ekið á börn á gangbrautum. Heldur ekki á gangandi vegfarendur við gatnamót, hvað þá í veg fyrir hjólandi umferð við innkeyrslur og útkeyrslur af bílastæðum. En það þarf ekki að leita lengi í íslenskum slysaskýrslum til að sjá að slys við einmitt þær aðstæður þegar bílum er ekið hægt eru mjög algeng og verða oft alvarleg, þrátt fyrir að umferðarreglur og lög eigi að koma í veg fyrir þau. Því miður er líka til mjög nýlegt dæmi um banaslys í umferðinni hér í Reykjavík, þar sem ökumaður ók á mjög litlum hraða á gangandi vegfaranda við einmitt þessar aðstæður, þ.e. 90 gráðu beygju á gatnamótum. Þær breytingar sem gerðar hafa verið í Reykjavík á undanförnum árum, þar sem svokallaðir beygjuvasar hafa verið fjarlægðir, auka til muna öryggi fólks í umferðinni. Þær breytingar hægja á akandi umferð við þá staði þar sem leiðir þungra ökutækja skera leiðir óvarinna vegfarenda. Þessar breytingar koma í veg fyrir sum af alvarlegustu slysunum sem verða í umferð í þéttbýli. Það verður seint talin slæm hugmynd. Hvað svo sem varaformanninum “finnst”. Höfundur er formaður Reiðhjólabænda. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Umferðaröryggi Hjólreiðar Samgöngur Mest lesið Við megum ekki tapa leiknum utan vallar Eysteinn Pétur Lárusson Skoðun Baslað í fyrirmyndarbænum Karl Pétur Jónsson Skoðun Þú ert búin að eyðileggja líf mitt!!! Sandra Ósk Jóhannsdóttir Skoðun Allt mun fara vel Bjarni Karlsson Skoðun Gagnslausa fólkið Þröstur Friðfinnsson Skoðun Hverfið mitt í Reykjavík 2018 Halldór Auðar Svansson Skoðun Við lifum á tíma fasisma Una Margrét Jónsdóttir Skoðun Betri þjónusta Strætó Heiða Björg Hilmisdóttir Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson Skoðun Börnin heyra bara sprengjugnýinn Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Við megum ekki tapa leiknum utan vallar Eysteinn Pétur Lárusson skrifar Skoðun Börnin heyra bara sprengjugnýinn Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Gagnslausa fólkið Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Allt mun fara vel Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Normið á ekki síðasta orðið Katrín Íris Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Við lifum á tíma fasisma Una Margrét Jónsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hinir miklu lýðræðissinnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kolefnishlutleysi eftir 15 ár? Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar Skoðun Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Tískuorð eða sjálfsögð réttindi? Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Áttatíu ár frá Hírósíma og Nagasakí Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Réttmætar áhyggjur eða ósanngjarnar alhæfingar? Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun „Þótt náttúran sé lamin með lurk!“ Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ekkert ævintýri fyrir mongólsku hestana María Lilja Tryggvadóttir skrifar Skoðun Nám í skugga óöryggis Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Tæknin á ekki að nota okkur Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ytra mat í skólum og hvað svo? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslaust Ísland! - Með hjálp stefnu um skaðaminnkun Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Meðsek um þjóðarmorð vegna aðgerðaleysis? Pétur Heimisson skrifar Skoðun Tími ábyrgðar í útlendingamálum – ekki uppgjafar Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun Takk starfsfólk og forysta ÁTVR Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Þjóðarmorðið í Palestínu Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Sjá meira
Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar
Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar
Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar