Sigurður Ágúst kjörinn formaður Félags eldri borgara Árni Sæberg skrifar 21. febrúar 2024 20:31 Sigurður Ágúst Sigurðsson er nýr formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Håkon Broder Lund Sigurður Ágúst Sigurðsson var í dag kosinn formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni á aðalfundi félagsins með rúmlega 60 prósent atkvæða. Meint hallarbylting sem fjallað var um í dag raungerðist.
Í tilkynningu þess efnis segir að þau Borgþór S. Kjærnested, Sigurbjörg Gísladóttir og Sverrir Kaaber hafi einnig verið í framboði til formanns. Framboð Sigurðar hafi hlotið 215 atkvæði eða 60,4 prósent atkvæða og framboð Sigurbjargar 130 atkvæði eða 36,5 prósent. Þá hafi Borgþór fengið sex atkvæði eða 1,7 prósent og Sverrir þrjú, eða 0,8 prósent. Alls hafi 356 greitt atkvæði á fundinum en tveir seðlar verið auðir og ógildir. Segir neyðarástand bitna á eldra fólki „Ég þakklátur fyrir þann mikla stuðning sem framboð mitt hlaut á fundinum í dag. Eins og ég benti á í ræðu minni í dag að þá eru sextán þúsund félagsmenn í félaginu sem eru rúmlega þriðjungur allra eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu. Þessi fjöldi félagsmanna minnir á samtakamáttinn sem við eigum hiklaust að beita í þeirri baráttu sem fram undan er og það munum við gera fyrir bættum lífsgæðum eldra fólks,“ er haft eftir Sigurði Ágústssyni. Þá er haft eftir honum í framboðsræðu í dag að skortur á hjúkrunarheimilum væri orðinn að neyðarástandi sem bitnaði af sífellt meiri þunga á eldra fólki og sjúkrahúsum. „Fyrir fundinum liggur ályktun vegna þessa ástands, en nú bíða 243 einstaklinga eftir því að fá úthlutuðu plássi. Hér þarf því að bregðast við án tafar, af festu og áræði.“ Var forstjóri Happdrættis DAS í 33 ár Sigurður Ágúst lét nýverið af störfum sem forstjóri Happdrættis DAS, en hann gegndi því starfi í 33 ár og sat stjórnarfundi Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins. Áður starfaði hann sem aðalbókari Hrafnistuheimilanna og sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hjá Slökkviliði Reykjavíkur (nú SHS). Þá situr Sigurður í stjórn Malbikunarstöðvarinnar Höfða en hann hefur enn fremur víðtæka reynslu af stjórnar- og nefndarstörfum. Jafnframt hefur hann setið í fjölda nefnda á vegum dómsmálaráðuneytisins vegna starfa sinna fyrir happdrætti DAS. Sigurður er fæddur árið 1953 og ólst upp í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík. Hann er kvæntur Guðrúnu B. Björnsdóttur læknaritara og eiga þau þrjár dætur og fjögur barnabörn. Sigurður útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands og er með próf frá Háskólanum í Reykjavík í fjármálum og rekstri. Höllinni var bylt Vísi bárust í dag ábendingar um að deild úr Sjálfstæðisflokknum hyggðist yfirtaka félagið. „Það hefur verið rosaleg smölun,“ sagði heimildarmaður Vísis sem var að hverfa inn á fundinn. Og talsvert hefði verið um skráningar í félagið, þá ekki síst úr Grafarvogi, Garðabæ, Seltjarnanesi og Álftanesi. Heimildarmaðurinn rakti að meðal þeirra sem buðu sig fram í stjórn væru meðal annarra þau Bessí Jóhannsdóttir, sem var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins um árabil, Jón Magnússon lögmaður, sem var þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Elinóra Inga Sigurðardóttir, sem var á ÍNN en hefur setið á listum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Ragnar Árnason hagfræðingur, sem hefur verið einn helsti hugmyndafræðingur Sjálfstæðisflokksins. Í fréttatilkynningu um kosningarnar segir að þau hafi öll hlotið kosningu, ásamt þeim Guðrúnu Ósk Jakobsdóttur, formanni fimleikadeildar Fylkis og Kristni Eiríkssyni verkfræðingi. Alls voru ellefu í framboði til stjórnar og má kynna sér ferilskrá þeirra hér.
Eldri borgarar Reykjavík Félagasamtök Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Erlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Innlent Fleiri fréttir Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Sjá meira