Ástarfundur á Ránargötu árið 1958 dregur dilk á eftir sér Árni Sæberg skrifar 11. janúar 2024 13:25 Móðir mannsins átti ástarfund við meintan föður hans á Ránargötu í gamla Vesturbænum. Vísir/Egill Karlmaður á sjötugsaldri hefur stefnt meintum systrum sínum og stjúpmóður til viðurkenningar þess að látinn maður sé faðir hans.
Í stefnunni, sem birt var í Lögbirtingarblaðinu í dag, er málsatvikum lýst svo að maðurinn hafi fæðst í febrúar árið 1959 og móðir hans þá hvorki verið gift né í sambúð. Í maí það ár hafi hún höfðað faðernismál á hendur manni en blóðflokkarannsókn hafi sýnt fram á að hann væri ekki barnsfaðir hennar. Árið 1965 hafi hún höfðað mál á hendur öðrum manni og dómur gengið í því tveimur árum síðar. Í dómsorði bæjarþings Hafnarfjarðar hafi sagt að ef móðir mannsins myndi vinna eið að því að hafa ekki haft holdlegar samfarir við aðra karlmenn en mennina tvo þá teldist síðari maðurinn barnsfaðir hennar. Engin gögn hafi fundist um eiðstaf móðurinnar og verði því að ætla að henni hafi eiðfall orðið. Andlegt ástand móðurinn hafi verið að sögn bágborið á þessum tíma og hún fallið fyrir eigin hendi í janúar árið 1975. maðurinn hafi alist upp án þess að vita hver hans faðir væri og engin kynni haft af mönnunum tveimur. Reyndi að fá málið endurupptekið Maðurinn reyndi að fá dóm bæjarþings endurupptekinn áður en hann stefndi meintri fjölskyldu sinni en hafði ekki erindi sem erfiði. Í ákvörðun Endurupptökudóms frá því í fyrra sagði að maðurinn hefði ekki notið aðildar að faðernismáli móður hans og því gæti hann ekki krafist endurupptöku. Dómurinn tók sérstaklega fram að þrátt fyrir framangreint væri manninum heimilt að höfða nýtt mál, sem hann hefur nú gert. Ekki við eina fjölina felldur Í stefnu mannsins segir að hann sé kominn af léttasta skeiði og honum sé mikið í mun að fá úr uppruna sínum skorið áður en yfir lýkur. Hann byggi á því að í dómi bæjarþings hafi verið gengið út frá því að meintur faðir hans hafi haft samfarir við móður hans á heimili hans við Ránargötu í Reykjavík, á getnaðartíma og án getnaðarverju. Hann hafi neitaði fyrir dómi að hafa haft samfarir við móðurina. Fyrr hefði hann þó óskað þess, eða þegar móðirin höfðaði barnsfaðernismál á hendur hinum manninum, að hún myndi þaga yfir fyrrgreindum ástarfundi þeirra á Ránargötunni. Ekki hafi þótt styrkja framburð mannsins að hann hafi ekki verið við eina fjölina felldur á þeim tíma er getnaður hafi átt að eiga sér stað. Hann hafi átt þrjú óskilgetin börn með þremur konum, utan hjónabands. Erfðapróf bendi til skyldleika Þá segir að síðan dómur bæjarþings féll í ágúst 1967 hafi miklar framfarir orðið á líftækni og á sviði erfðafræðirannsókna. Í dag sé með óyggjandi hætti hægt að staðfesta faðerni barns með lífsýnum, ólíkt því sem var árið 1967 þegar blóðflokkarannsóknir gátu eingöngu útilokað menn frá faðerni en ekki staðfest það. Maðurinn telji að með mannerfðafræðilegri rannsókn verði hægt að fá endanlega skorið úr sakarefni þess máls. Í því samhengi megi vekja máls á því að maðurinn hafi farið í DNA-Heritage próf [svo] sem sýnt hafi fram á náinn skyldleika með afkomendum meints föður. Erfðafræðileg rannsókn muni því koma til með að skera nánar úr um hversu mikill sá skyldleiki er, en ljóst sé af þessu að töluverðar líkur séu á því að maðurinn heitinn sé faðir stefnanda.
Dómsmál Reykjavík Fjölskyldumál Mest lesið Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Innlent Fleiri fréttir Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Ákvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Ekið á skólarútu Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Komu biluðum báti til bjargar Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Niðurrifið á göngubrúnni hafið Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Þorsteinn tekur við formennsku af Fanneyju Birnu Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Bein útsending: Ársfundur Samorku Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Kviknaði í kaffibrennsluofni Vaxtaákvörðun framundan og snjóflóðahætta fyrir vestan Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Árekstur við Suðurlandsbraut „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Fyrri umræðu um þjóðaratkvæði lokið Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Sjá meira