Segir eldflaugum hafa verið skotið frá Hvíta-Rússlandi Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 28. júlí 2022 06:54 Ungir sjálfboðaliðar í Chernhiv vinna að því að lagfæra byggingu sem varð fyrir eldflaugaárás. AP/Vasilisa Stepanenko Héraðsstjórinn í Chernhiv, Viacheslav Chaus, segir eldflaugum hafa verið skotið á svæðið í morgun. Hann segir flaugarnar hafa komið frá Hvíta-Rússlandi.
Aukinn skriðþungi er að færast í gagnsókn úkraínska hersins í Kherson héraði sem Rússar náðu á sitt vald á dögunum. Að sögn breska varnarmálaráðuneytisins virðist sem Úkraínumenn hafi náð vígstöðu suður af Ingulets ánni, sem er svæði sem Rússar höfðu áður á sínu valdi. Þá hafa þeir notað langdræg stórskotaliðsvopn til að eyðileggja að minnsta kosti þrjár brýr yfir Dnipro ánna sem Rússar hafa reitt sig á til að fá vistir og vopnabúnað. Fertugasta og níunda herdeild Rússa er nú stödd vestan við Dnipro og segja Bretarnir að herdeildin sé nú mjög illa í sveit sett og viðkvæm fyrir árásum Úkraínumanna. Þá virðist Úkraínumönnum einnig hafa gengið vel við að einangra héraðshöfuðborgina Kherson og er borgin nú alls ótengd frá yfirráðasvæði þeirra, ólíkt því sem var fyrir nokkrum dögum síðan. Í morgun gerðist það einnig að héraðsstjórinn í Chernihiv í Úkraínu fullyrðir að eldflaugum hafi verið skotið á svæðið í morgun og að flaugarnar hafi komið frá Hvíta-Rússlandi, en Hvítrússar styðja Rússa í herleiðangri sínum, óbeint í það minnsta. Talið er að flaugarnar hafi verið um tuttugu talsins en óljóst er um tjón af völdum þeirra.
Úkraína Rússland Hvíta-Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Innlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira