Kannabisræktandi dæmdur fyrir ofbeldi gegn kærasta Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. apríl 2022 14:50 Málið var til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm Kona á höfuðborgarsvæðinu hefur verið dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kannabisræktun og ofbeldi í nánu sambandi. Konan játaði brot sín fyrir dómi.
Annars vegar var konan ákærð fyrir að hafa sunnudag í ágúst árið 2020 haft á heimili sínu 780 grömm af kannabisplöntum, 35 grömm af laufum og rúm sextán grömm af maríjúana. Einnig að hafa um nokkurt skeið ræktað plönturnar sem fundust á heimili hennar. Hins vegar var hún ákærð fyrir ofbeldi í nánu sambandi með því að hafa í september sama ár slegið þávarandi kærasta í höfuðið með glerflösku með þeim afleiðingum að kærastinn hlaut yfirborðsáverka og skurði í andliti. Konan var með 0,2 grömm af maríjúana á sér þegar lögregla leitaði á henni. Var hún aftur kærð fyrir fíkniefnabrot. Þá var konan einnig ákærð fyrir að hafa ítrekað slegið sama þáverandi kærasta með tjaldhæl í höfuðið í október 2021. Saksóknari féll frá þeim hluta ákærunnar fyrir dómi. Við ákvörðun refsingar leit Héraðsdómur Reykjavíkur meðal annars til þess að í því tilfelli sem konan sló kærastann þáverandi með glerflösku hefðu þau átt í átökum. Kærastinn hefði togað í hár hennar í þeim átökum. Þá leit dómurinn til þess að konan hefði hætt neyslu eftir að brot gerðust.
Dómsmál Fíkniefnabrot Heimilisofbeldi Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira