Búist við brottrekstri og tilraun til að taka við Man. Utd Sindri Sverrisson skrifar 10. mars 2022 08:01 Mauricio Pochettino og Kylian Mbappé í Madrid í gærkvöld. Þeir virðast báðir vera á förum frá PSG. Getty/David Ramos Örlög Mauricio Pochettino hjá PSG virðast endanlega ráðin eftir að liðið féll enn á ný snemma úr leik í Meistaradeild Evrópu í fótbolta, með tapinu gegn Real Madrid í 16-liða úrslitum í gær.
Þetta fullyrðir meðal annars franska stórblaðið L‘Equipe og fleiri taka í sama streng. L‘Equipe segir að með sigri gegn Real Madrid hefði Pochettino mögulega getað náð vendipunkti sem stjóri PSG en nú megi gera ráð fyrir því að hann yfirgefi félagið eftir eina verstu leiktíð frá því að félagið fór í eigu katarskra olíufursta. Real Madrid vann 3-1 sigur gegn PSG í gærkvöld og einvígi liðanna þar með 3-2. Mögulega fær Pochettino að klára tímabilið með PSG en yfirburðir liðsins í frönsku deildinni eru slíkir að nær óumflýjanlegt virðist að liðið verði franskur meistari. PSG er þrettán stigum á undan næsta liði, Nice, þegar ellefu umferðir eru eftir. Vildi ekki ræða framtíð sína og Mbappé Pochettino er með samning við PSG sem gildir fram til ársins 2023 en nær útilokað virðist að hann starfi svo lengi hjá félaginu. Breska blaðið The Telegraph segir að verði Pochettino látinn fara þá muni hann sækjast eftir því að taka við Manchester United sem er í leit að stjóra til að taka við liðinu í sumar. Pochettino hefur lengi verið í sigti United en ekki er ljóst hvort hann er efstur á blaði og hvort að úrslitin í gær hafi þar einhver áhrif. Pochettino var í gærkvöld spurður út í framtíð sína sem og framtíð Kylians Mbappé, sem sagður er á leið til Real Madrid í sumar, en sagðist ekkert vilja tjá sig. Hann væri einfaldlega mjög vonsvikinn og að ekki væri tímabært að ræða þessi mál núna.
Enski boltinn Franski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ Sport Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Sport „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Fótbolti Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti Byrjar meðferð vegna brjóstakrabbameins Handbolti Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Handbolti Nýtt heimsmet sett: „Sé því að ég á að geta gert miklu betur“ Sport Alexander Máni seldur til Midtjylland Íslenski boltinn Einar tekur við Víkingum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Sjá meira