Fer frá HÍ til að taka við sem deildarforseti hjá HR Eiður Þór Árnason skrifar 16. nóvember 2021 10:33 Jón Þór Sturluson, nýr forseti viðskiptadeildar HR. Aðsend Dr. Jón Þór Sturluson hefur verið ráðinn deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Hann starfaði síðast sem dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Jón Þór útskrifaðist með doktorsgráðu í hagfræði frá Stockholm School of Economics árið 2003 með áherslu á atvinnuvega- og orkuhagfræði. Áður lauk hann B.Sc. og M.Sc. prófi frá Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HR en ásamt því að hafa starfað hjá HÍ hefur Jón Þór gegnt stöðu dósents við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík frá árinu 2006, í hlutastarfi frá 2013, og stundað rannsóknir og kennslu á sviði fjármála og hagfræði. Einnig hefur hann veitt meistaranámi í fjármálum- og reikningshaldi forstöðu. Var aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins Frá 2013 til 2020 starfaði Jón Þór sem aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins, sem bar ábyrgð á eftirliti með starfsemi fjármálafyrirtækja, vátryggingarfélaga, lífeyrissjóða og starfsemi á verðbréfamarkaði. Þar bar hann meðal annars ábyrgð á varúðareftirliti með bönkum, þjóðhagsvarúð og viðbúnaði við áföllum. Þá var hann meðlimur í kerfisáhættunefnd. Jón Þór var ritstjóri Tímarits um viðskipti- og efnahagsmál um tíma og frá 2004 til 2006 gegndi stöðu dósents við Háskólann á Bifröst og starfi forstöðumanns Rannsóknaseturs verslunarinnar. Á alþjóðlegum vettvangi hefur Jón Þór setið í stjórn Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar (EBA), verið áheyrnarfulltrúi í Evrópska kerfisáhætturáðinu (ESRB), fulltrúi í ráðgjafaráði Fjármálastöðugleikaráðsins fyrir Evrópu (FSB-RCG Europe) og þátttakandi í ýmsum norrænum nefndum á sviði fjármálaeftirlits og fjármálastöðugleika. Haustið 2019 var hann í gestastöðu við fjármálastöðugleikastofnun Alþjóðagreiðslubankans (BIS). Að sögn HR hefur Jón Þór einnig tekið þátt í alþjóðlegu rannsóknasamstarfi, einkum á sviði orkumála og fjármálastöðugleika.
Vistaskipti Háskólar Mest lesið Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Viðskipti innlent Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Opna menningarmiðstöð í Smáralind Viðskipti innlent Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Viðskipti innlent Óskar Ingi fjármálastjóri Beru Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Sjá meira