Þrjú innbrot og árás á dyravörð Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. nóvember 2021 06:26 Lögreglu bárust þrjár tilkynningar um innbrot í gærkvöldi. Lögreglu bárust í gær þrjár tilkynningar vegna innbrota. Í tveimur tilvikum var um að ræða innbrot á heimili en í einu innbrot í bifreið. Innbrotin áttu sér stað í þremur póstnúmerum; 103, 105 og 108.
Um kl. 21 var tilkynnt um innbrot í bifreið í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Var rótað í bílnum og munum stolið og búið að skemma kveikjulásinn. Rétt fyrir kl. 22 var tilkynnt um innbrot á heimili í Hlíðahverfi. Þar var „losaður úr gluggi“ samkvæmt tilkynningu lögreglu og farið inn en ekki er vitað hverju var stolið. Um kl. 22.30 var síðan tilkynnt um innbrot í Múlahverfi en þar var stormjárn skemmt og farið inn. Búið var að róta í munum á heimilinu og vinna einhverjar skemmdir á innanstokksmunum. Hinir óprúttnu aðilar eru sagðir hafa haft sig á brott þegar öryggiskerfi fór í gang. Fyrir utan húsið fundust munir sem eru taldir tengjast öðrum innbrotum. Um kl. 23 var tilkynnt um líkamsárás á veitingastað í miðborginni. Þar fékk dyravörður hnefahögg í andlitið og vitað er hver gerandinn var. Þá var tilkynnt um slys í miðborginni skömmu eftir miðnætti. Ungur maður datt af rafmagnshlaupahjóli og hlaut skurð, auk þess að vera illa áttaður eftir fallið. Var hann fluttur á bráðamóttöku Landspítala með sjúkrabifreið.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Sjá meira